Valkyrjur brugga launráð

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Guðmundur Ingi mennta- og barnamálráðherra varð fyrir ofbeldi á sjúkrabeði. Útsendari valkyrjanna sagði Guðmund Inga eiga tvo valkosti: afsögn eða stríð. Útsendarinn, Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir er í þreföldu hlutverki. Hún var aðstoðarmaður Guðmundar Inga, er eiginkona Ragnars Þórs sem varð ráðherra í kjölfar afsagnar Guðmundar Inga og í þriðja lagi boðberi seiðkvenna stjórnarráðsins.
Guðbjörg þrefalda skrifaði til Guðmundar Inga á sjúkrahúsi:
Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna en ekki þeirra sem sitja eftir í flokknum og ég vona að þú munir snúa til baka á Alþingi og heldur þeirri gríðarmikilvægu vinnu hans áfram.
En fyrst svona er komið þá er hægt að fara tvær leiðir – tilkynna veikindaleyfi og að þú munir snúa til baka á Alþingi þegar þú hefur heilsu til eða fara í stríð.(feitletr. pv)
Í lok skilaboðanna ritar Guðbjörg afsagnartexta Guðmundar Inga. Ofan á beinar hótanir í garð ráðherra á sjúkrabeði bættist áreiti gagnvart fjölskyldu hans. Sálfræðihernaðurinn skilaði árangri. Guðmundur Ingi brotnaði og skrifaði undir afsögn. Eftir að hann náði heilsu ákvað hann að gefa almenningi kost á að kynna sér starfshætti valdakvenna á æðstu stöðum.
Þær Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga Sæland lögðu á ráðin um aðförina að Guðmundi Inga á sjúkrabeði. Um er að ræða ráðherra í ríkisstjórn Íslands, ekki ritara í kvenfélagi eða stjórnarmann í einhverju kverúlantafélagi. Ráðherrar fara með víðtæk völd í umboði almennings. Sé ráðherra skipt út, af hvaða ástæðu sem það annars er, verður að standa að því að siðaðra manna hætti. Að ekki sé talað um lög og reglur stjórnarráðsins.
Valdið stígur seiðkonum stjórnarráðsins til höfuðs. Þær starfa eftir reglunni ég-á-þetta-ég-má-þetta, sem varð fræg að endemum rétt fyrir hrun. Aðförin að ráðherradómi Guðmundar Inga sýnir gerræðislegt stjórnarfar taugaveiklaðra kvenna sem hafa misst tökin á atburðarásinni. Hér eftir verður spurt um stjórnvaldsákvarðanir á æðstu stöðum hvort þær séu teknar eftir ígrundun á málefnalegum forsendum eða í æðiskasti.