Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 10. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan samkomulag náðist um að aflýsa verkfalli flugvirkja á miðvikudag, sem stóð í tæpan hálfan sólarhring.
Samkvæmt samkomulaginu á að nýta næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna samkvæmt viðræðuáætlun ríkissáttasemjara.