Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru í gær dæmd til átta ára fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Rúmlega 18 kíló af kókaíni fundust í ferðatöskum fólksins þegar það kom til Íslands frá Frankfurt í Þýskalandi 27. maí.
Greint var frá smyglinu í júlí. Þá kom fram í fréttum RÚV að þetta væri eitt mesta magn kókaíns sem reynt hefði verið að smygla um Keflavíkurflugvöll.
Tekin á Keflavíkurflugvelli
Upp komst um smyglið þegar tollverðir höfðu afskipti af Cristinu við komuna til Íslands. Handfarangurstaska hennar var gegnumlýst en ekkert sást athugavert við hana. Þá var tekið fíkniefnapróf af vegabréfi konunnar sem leiddi í ljós ketamín og kókaín.
Jose, kærasti hennar, var kominn út úr flugstöðinni þegar Cristina var handtekin. Lögregla bað hana um að hringja í Jose sem sneri aftur í flugstöðina með tvær ferðatöskur. Þær voru gegnumlýstar og kom þá í ljós að í þeim var mikið magn kókaíns.
Plötur voru í botni beggja ferðataskanna og fíkniefnin falin undir þeim.
Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi orðið mjög æstur og sá lögregla sig tilknúna til að handtaka hann.
Í samskiptum við „Adamsandlers“ og „entheonpsy Raffa“
Jose kannaðist ekkert við að vera með fíkniefni á sér en skoðun á WhatsApp og Telegram samskiptamiðlunum leiddi í ljós samskipti hans við menn með notendanöfnin Adamsandlers og entheonpsy Raffa. Orðaskiptunum við Adamsandlers hafði verið eytt út en sjá mátti myndir af fíkniefnum frá Raffa.
Jose sagðist telja að Adamsandlers héti raunverulega Adam að fornafni en vita lítið um hann annað en að hann byggi í Taílandi en væri frá Ísrael.
Jafnframt var þar að finna samskipti Jose og Raffa um kaup og sölu á fíkniefnum og peningasendingar í gegnum Western, sem talið er vera Western Union.
Fyrir rétti neituðu bæði Jose og Cristina því að kannast nokkuð við fíkniefnin. Hann sagðist hafa keypt notaðar töskur á flóamarkaði og lýsti því að kannski hefðu fíkniefnin þá þegar verið í þeim. Þær skýringar þóttu fjarstæðukenndar.