„Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarn­freðar­son!“ - Vísir

„Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarn­freðar­son!“ - Vísir

„Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarn­freðar­son!“ - Vísir

Útvarpskonan á FM957 segist enda vera algjör alæta á íslenskt sjónvarpsefni, hvort sem um er að ræða nýja þætti, nostalgíu, grín og glens eða íslensk sakamál.

Jóna Margrét stýrir Traffíkinni á FM957 ásamt Guðjóni Smára Smárasyni mánudaga til fimmtudaga frá kl. 14-18. Þegar hún er ekki í útvarpinu sinnir hún meðal annars söngverkefnum, veislustýringu og gerð samfélagsmiðlaefnis. Þegar kemur að sjónvarpsáhorfi er þó eitt alveg á hreinu: Íslenskt skal það vera. „Ég er algjör alæta á íslenskt efni og finnst svo gaman hversu mikið er af góðu íslensku efni í boði,“ segir Jóna Margrét.

Undanfarið hefur hún meðal annars rifjað upp gamla tíma með Viltu finna milljón? og viðurkennir að hafa hámhorft á þættina, þótt hún hafi séð þá áður. Nostalgían hefur reyndar fengið að ráða för víðar. „Gömlu þættirnar af Strákunum eru komnir inn á SÝN+ þar sem Auddi, Pétur og Sveppi eru í aðalhlutverki. Það voru að koma inn rúmlega hundrað þættir og ég er búin að horfa mikið á þá. Þessir þættir eru svo skemmtilegir og svo mikil nostalgía. Það er líka svo gaman að sjá muninn á þessum gömlu þáttum og nýjum þáttum því það hefur svo margt breyst.“

Eins og að fá að sitja með vinunum

Nýrra efni hefur ekki síður ratað á skjáinn hjá Jónu Margréti. Hún nefnir sérstaklega Milli vina, þar sem tveir þekktir einstaklingar sem tengjast nánum vinaböndum setjast niður og ræða saman. „Ég elska þessa þætti vegna þess að þeir eru svo ótrúlega einlægir. Maður fær að kynnast þessu fallega sambandi á milli einstaklinga sem eru mjög góðir vinir.“

Það er einmitt nándin og tilgerðarleysið sem heillar. „Fólk segir eiginlega bara það sem því liggur á hjarta og það er ekkert feikað við þetta. Maður er í rauninni bara að fá að vera með vinum sem sitja og spjalla saman. Þetta er ótrúlega einlægt, fallegt og skemmtilegt.“

Íslensku Taskmaster-þættirnir hafa sömuleiðis hitt beint í mark hjá Jónu Margréti, sem segir þó erlendu útgáfurnar aldrei hafa náð almennilega til sín. „Þegar þeir voru gerðir hér heima féll ég alveg fyrir þeim. Þetta eru ógeðslega skemmtilegir og vel uppsettir þættir þar sem grínistarnir Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð fara á kostum.“

Hún hefur einnig fylgst með nýjum örþáttunum sem nefnast Skólinn, en þar fær ungt fólk að spreyta sig. Þar sér Jóna Margrét ákveðna tengingu við samfélagsmiðla og þá þróun sem orðið hefur í stuttu myndefni undanfarin ár. 

Það er fátt sem ég elska meira en að sjá ný andlit og ungt fólk spreyta sig í sjónvarpi. Þetta er ótrúlega vel gert og mjög skemmtilegt.

Þættirnir minna að einhverju leyti á það sem sjáist á TikTok, þar sem stuttir sketsar séu orðnir áberandi. „Það er verið að færa það yfir í sjónvarp og það virkar ógeðslega vel.“

Kvissið með í eldhúsið

Sjónvarpið þarf heldur ekki alltaf að njóta óskiptrar athygli. Þegar Jóna Margrét stendur yfir pottunum er til dæmis ákveðinn þáttur sem fær reglulega að fylgja með. 

Þegar ég er að elda eða eitthvað slíkt kveiki ég alltaf á Kviss. Þetta eru einhverjir best uppsettu spurningaþættir sem ég veit um. 

Það er gaman að fá spurningarnar og taka þátt í að reyna að svara þeim en líka bara skemmtun því þarna er svo skemmtilegt fólk í salnum.“

Þótt grín og léttleiki séu ofarlega á óskalistanum getur efnisvalið farið hratt úr einum enda skalans yfir í hinn. Íslensk sönn sakamál höfða nefnilega líka sterkt til hennar. „Ég leita mikið í grín og glens. En svo finnst mér líka þættir eins og Ummerki, þar sem fjallað er um íslensk glæpamál, vera mjög áhugaverðir. Sama á við um Eftirmál, þar sem farið er yfir stór mál. Þetta eru oft þungir þættir en þeir eru svo ótrúlega vel gerðir.“

Valið sé því gjarnan einfalt: „Þetta er svolítið annaðhvort grín og glens eða íslensk sönn sakamál.“

Þarf ferðafélaga í gegnum seríurnar

Kvikmyndir eiga heldur erfiðara uppdráttar hjá Jónu Margréti. Hún lýsir sér fyrst og fremst sem þáttamanneskju og segist raunar eiga eftir að sjá ýmsar frægar kvikmyndir sem virðast vera á skyldulista allra annarra.

Ást hennar á íslensku efni nær þó líka yfir hvíta tjaldið. „Ef það kemur út íslensk bíómynd horfi ég á hana,“ segir hún og bætir við að gamlar íslenskar kvikmyndir séu líka alltaf skemmtilegar. Hún hafi jafnvel leigt íslenskar myndir sérstaklega þegar þær hafi ekki verið aðgengilegar annars staðar.

„Ég er svolítið skondin að því leyti að ég get ekki sest ein fyrir framan sjónvarpið,“ segir Jóna Margrét.Mynd/Guðjón Smári.

Ástæðan fyrir því að sjónvarpsþættir verða oftar fyrir valinu er einföld. „Ég held að sjónvarpsþættir höfði meira til mín vegna þess að ég hef ekki alveg úthald í að sitja svo lengi fyrir framan sjónvarpið.“

Það er raunar ekki sjálfgefið að hún setjist ein niður og horfi á heila seríu. „Ég er svolítið skondin að því leyti að ég get ekki sest ein fyrir framan sjónvarpið. Þá verð ég bara eirðarlaus og nenni því ekki. Því þarf ég eiginlega alltaf að finna mér einhvern ferðafélaga í gegnum seríur.“

Sambýliskonan og vinirnir eru því gjarnan kallaðir til. Undantekningin er létt skemmtiefni á borð við þætti með Audda Blö, Steinda og Dóra DNA. „Þá get ég alveg verið ein, verð ekki eirðarlaus. Það er svo mikil skemmtun í þessum þáttum því þeir eru búnir að fullkomna þessa formúlu svo vel.“

Sófinn sækir aftur í sig veðrið

Kvöldin eru hennar uppáhalds sjónvarpstími. Á daginn sé hugurinn á fullu en þegar kvölda tekur sé gott að setjast niður og hægja aðeins á.

Og þótt símar og spjaldtölvur hafi tekið stóran hluta af daglegu áhorfi fólks segir Jóna Margrét ákveðna breytingu vera að eiga sér stað í kringum sig. Gamla góða sjónvarpskvöldið virðist vera að sækja aftur í sig veðrið. 

Í kringum mig núna finn ég að vinahópurinn minn er svolítið kominn aftur í það að setjast í sófann og eiga þetta móment. Sitja saman, poppa og horfa saman.

Hún telur mögulega að þar sé ákveðin nostalgía að verki. Fólk verji stórum hluta dagsins í tölvunni, í símanum, á TikTok og Instagram, og sé í raun stöðugt að neyta einhvers konar efnis. „Þegar maður horfir svo á faglega framleitt sjónvarpsefni verður það ákveðið móment: Maður sest í sófann með vinum eða fjölskyldunni, ýtir á „play“ og nýtur í botn.“

Og þá vantar auðvitað eitthvað gott með. Þar hefur sambýliskonan kynnt Jónu Margréti fyrir uppskrift sem hún segir að allir verði að prófa: svart Doritos með sósu úr hreinni grískri jógúrt og Sriracha. „Maður blandar þessu saman og útkoman er alveg geggjuð. Það þurfa allir að prófa þessa sósu næsta sjónvarpskvöld.“

Hverjir eru uppáhaldsleikararnir þínir?

„Ég á marga uppáhalds íslenska leikara en hef ekki endilega mikla skoðun á erlendum leikurum. Þessa dagana eru það Lilja Nótt, en ég er búin að fylgjast mikið með þáttum sem hún er að leika í, og svo á Ilmur Kristjánsdóttir alltaf stað í hjartanu mínu.“

Manstu eftir fyrstu upplifun þinni af sjónvarpsþáttum og fyrstu bíómyndinni?

„Uppáhaldsminning mín tengd sjónvarpi úr æsku er að sitja og horfa á línulega dagskrá. Þá var Algjör Sveppi algjörlega málið og ég vaknaði með þáttunum um allar helgar. Raunar held ég að Sveppaþættirnir hafi verið grunnurinn að því að ég fékk svona mikla ást á íslensku efni.“

Fyrsta bíóminningin mín er þegar mamma dró mig á Avatar í þrívídd. Mér fannst myndin svo leiðinleg og hélt að hún ætlaði aldrei að taka enda!“

Ef þér væri boðið í búningamatarboð og gestirnir þyrftu að vera persónur úr sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum, hvernig myndir þú mæta?

Georg Bjarnfreðarson er stór karakter í lífi Jónu Margrétar eins og kemur fram í spjallinu.

„Ég myndi mæta sem Georg Bjarnfreðarson. Ég tók einmitt eftir því að Næturvaktin er komin inn á SÝN+ og það gleður mig mikið. Vaktirnar eru meðal besta íslenska sjónvarpsefnis sem framleitt hefur verið. Ég myndi alltaf velja Georg Bjarnfreðarson, hann er svo mikill karakter.“

Geturðu horft á einhverja sjónvarpsþætti aftur og aftur án þess að fá leið?

„Já, Dagvaktina, Næturvaktina og Fangavaktina. Og Friends.“

Hefurðu einhvern tímann hámhorft á þáttaröð þannig að þú hafir vakað alla nóttina af því að þú þurftir alltaf að klára næsta þátt?

„Þar get ég nefnt The Blacklist og The Mentalist. Þetta eru sakamálaþættir sem ég missti mig svolítið í.“

Er einhver sjónvarpspersóna sem þú myndir helst vilja fara út að borða með?

„Það verður eiginlega að vera Georg Bjarnfreðarson líka. Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“

Er einhver þáttaröð eða kvikmynd sem allir virðast elska en þú skilur ekki af hverju?

„Já, mjög margt! Avatar, Lord of the Rings, allt þetta Hobbit-dæmi, Game of Thrones og Harry Potter. Svo eru líka rosalega margar myndir sem ég hef ekki séð sem sjokkerar fólk, t.d. myndir eins og Shrek og The Lion King. Ævintýraheimar með skrímslum, drekum og fljúgandi kústum eru eitthvað sem ég næ ekki alveg. Samt eru hryllingsmyndir eiginlega einu myndirnar sem ég horfi á.“

Ertu góð í að giska á hvernig þættir eða kvikmyndir enda? Sérðu t.d. fljótt hver er morðinginn?

„Já, ég myndi segja það. Ég á mjög erfitt með fyrirsjáanleika. Þegar ég leita að bíómynd leita ég beinlínis að myndum með óvæntum fléttum og miklum ófyrirsjáanleika. Það heldur mér við efnið.“

Ef gerð yrði sjónvarpsþáttaröð um líf þitt, hvaða leikari ætti að leika þig?

„Góð spurning. Kannski Guðjón Smári, félagi minn úr Traffíkinni. Hann er mjög góður leikari og þekkir mig svo vel. Hann þyrfti bara að setja upp hárkollu.“

Ef þú fengir lítið hlutverk í sjónvarpsseríu, hvaða þætti myndirðu velja?

„Ég verð að segja Friends. Það er kannski „basic“ svar en ég held að ég myndi velja þá.“

Hvaða kvikmynda- eða sjónvarpsheim myndirðu helst vilja búa í í eina viku?

„Það yrði Wisteria Lane í Desperate Housewives. Mig dreymir um að búa í svona hverfi og dreymir raunar um að fara út og sjá settið.“

Skvísurnar í Desperate Housewives búa við Wisteria Lane og þar væri Jóna Margrét helst til í að búa í eina viku.

#fyrir #hef #margar #spurningar #svo


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262939095d/-eg-hef-svo-margar-spurningar-fyrir-georg-bjarn-fredar-son-

📰 Aðrar fréttir

Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 0
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
📅 25.09.2026 👁️ 0
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
The BBC's financial situation "may well mean" some channels and stations close, Matt Brittin says.
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
Setningarathöfn Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík eða Riff fór fram með pompi og prakt í gær. Dagskráin í ár er sérstaklega vegleg og þá ha...
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
Rætt var um aðdraganda afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar úr embætti barna- og menntamálaráðherra á Alþingi í gær og sást Guðmundur hrista hausinn ...
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
Upplausn hefur ríkt innan SÁÁ sem rekur meðferðarstofnanir við fíknivanda. Bæði forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga létu nýlega af störfum vegna ós...
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands meðan Netanjahú flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Send...
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
Meirihluti nefndarinnar greiddi atkvæði með því að banna tvo lista fyrir kosningarnar og að meina einstökum arabískum stjórnmálamönnum að bjóða sig fr...
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
Rætt verður við Guðmund Inga í hádegisfréttum Bylgjunnar en þar ræðir tjáir hann sig um viðbrögð Ingu Sæland og umræðuna um málið á Alþingi í gær. Sjú...
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
📅 25.09.2026 👁️ 0
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður Fréttin25. september 2026Innlent, PistlarLeave a Comment Samsett mynd: fh. Eldur Smári Kristinsson, Snorri...
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
📅 25.09.2026 👁️ 0
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
Ekki hefur verið hægt að leggja fólk inn á Vog þessa vikuna vegna skorts á starfsfólki. Ekki verður heldur hægt að taka inn fólk í næstu viku eins og ...
Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
Hávær mótmæli hafa brotist út á Spáni eftir að 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madrid fyrr í vikunni.Mótm...
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna Fréttin25. september 2026ErlentLeave a Comment „Enginn þarf...
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
Fyrsti fundur fer fram í Öskju í Vatnsmýri í dag, föstudaginn 25. september kl. 11:30 til 13:00. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspít...
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
Stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla skorar á Alþingi að falla frá 1.351 milljónar króna aðhaldskröfu á háskóla og rannsóknarstarfsemi. Aðhaldskr...
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
📅 25.09.2026 👁️ 0
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
Ráðherrar veita ekki viðtöl eftir reglulegan ríkisstjórnarfund í dag. Ríkisstjórnin fundar venju samkvæmt á þriðjudögum og föstudögum og eftir flesta ...
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hefur staðið í stappi undanfarið við tæknifyrirtækið Meta eftir að Facebook stal...
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
📅 25.09.2026 👁️ 0
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
Tim Janus, einn besti kappátsmaður heims, er látinn aðeins 49 ára. Janus vann sér það til dæmis til frægðar að borða 54 pylsur í einni máltíð.Breska b...
Valkyrjur brugga launráð
📅 25.09.2026 👁️ 1
Valkyrjur brugga launráð
Valkyrjur brugga launráð Fréttin25. september 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Guðmundur Ingi mennta- og barna...
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
A woman who accused Jay-Z of raping her when she was 13 now says she has never met the rap superstar.
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
📅 25.09.2026 👁️ 0
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 10. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan samkomulag náðist...
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
Vaxandi þungi virðist vera í þeim skilaboðum sem koma frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að EES-ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Liechtenstein, þ...
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
Þættirnir eru sýndir á streymisveitunni Sýn+ og kemur fyrsti þáttur inn í dag. Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ó...
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
Hann hefur komið sér vel fyrir í fallegu einbýlishúsi úti á Seltjarnarnesi. Björn er augljóslega mikill smekkmaður enda er húsið fallega hannað að inn...
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
📅 25.09.2026 👁️ 1
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
Daniel Thomas is accused of criminal damage after a video appeared to show him slashing at a dinghy.
„Við erum ekki að byrja á núlli“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Við erum ekki að byrja á núlli“ - Vísir
Í samtali við Ástráð skömmu áður en fundur hófst sagði hann að unnið yrði á þeim grundvelli sem búið var að setja saman í innanhústillögu um síðustu h...
Þriggja turna þras í fursta­dæmunum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þriggja turna þras í fursta­dæmunum - Vísir
Í viðtali við úkraínskan miðil í morgun sagði Selenskí að hann hefði fengið þau skilaboð frá ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum að þar væri von...
Fimm ára dómur Norberts stað­festur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm ára dómur Norberts stað­festur - Vísir
Með dómi Landsréttar í gær var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember í fyrra staðfestur. Reifun á honum má sjá í fréttinni hér að neðan: Í d...
Veita ekki við­töl eftir ríkis­stjórnar­fund - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Veita ekki við­töl eftir ríkis­stjórnar­fund - Vísir
Ríkisstjórnin fundar alla þriðjudaga og föstudaga. Að fundi loknum er venjan að fjölmiðlar fái viðtöl við ráðherra en það hefur reynst erfitt að hitta...
Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum - Vísir
Með fullum jöfnuði er átt við að heildarfjöldi þingmanna hvers flokks sé í samræmi við fylgi flokksins á landsvísu. Þorkell sat í starfshópi um breyti...
Skólahjúkrunarfræðingar hefja skimun fyrir ofbeldi
📅 25.09.2026 👁️ 1
Skólahjúkrunarfræðingar hefja skimun fyrir ofbeldi
Heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein. Skimun fyrir ofbeldi hefst í grunnskólum landsins í október og ný ofbeldismóttaka barna v...
Vilhjálmur hefur áhyggjur: „Sem næst 0%!“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vilhjálmur hefur áhyggjur: „Sem næst 0%!“
Vilhjálmur Bjarnason, fjárfestir og fyrrverandi þingmaður, segir að mikið verk sé að ríkisstjórn og atvinnulífið að skapa tækifæri fyrir ungt fólk eft...
Tvö fengu átta ára dóm fyrir að smygla 18 kílóum af kókaíni
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tvö fengu átta ára dóm fyrir að smygla 18 kílóum af kókaíni
Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru í gær dæmd til átta ára fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Rúmlega 18 kíló af kó...
Noah Woods died after leaving park through gap in fence, inquest hears
📅 25.09.2026 👁️ 1
Noah Woods died after leaving park through gap in fence, inquest hears
An inquest is told the three-year-old's body was found among submerged tree roots.
Robbie Williams' surprise singalong after Peru gig cancelled
📅 25.09.2026 👁️ 2
Robbie Williams' surprise singalong after Peru gig cancelled
Robbie Williams gave an impromptu performance outside a hotel in Lima after his stadium concert was cancelled.
Fjölskyldurnar eiga 60 milljónir og skulda 15
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fjölskyldurnar eiga 60 milljónir og skulda 15
Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra...
Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15
Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra...
Bjarni Ben hæstánægður með Pétur á Garðatorgi – „Snillingur!“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Bjarni Ben hæstánægður með Pétur á Garðatorgi – „Snillingur!“
„Þegar maður fær alveg hreint framúrskarandi þjónustu vaknar eiginlega skylda hjá manni að vekja athygli á því og þakka fyrir sig,“ segir fyrrverandi ...
Holmes flutt á áfangaheimili - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Holmes flutt á áfangaheimili - Vísir
Dagblaðið Guardian greinir frá.  Holmes var dæmd í meira en ellefu ára fangelsi árið 2022 fyrir að svíkja fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. ...
Sveinn Andri gefur útspilinu falleinkunn: „Kýs að ausa fyrrum samherja sína óhróðri“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn Andri gefur útspilinu falleinkunn: „Kýs að ausa fyrrum samherja sína óhróðri“
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson segir að Guðmundur Ingu Kristinsson, fyrrverandi ráðherra Flokks fólksins, hafi berað sig algjörlega og hafi komið ...
Setja tak­markanir á fjölda er­lendra nem­enda í bekk - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Setja tak­markanir á fjölda er­lendra nem­enda í bekk - Vísir
Haft er eftir Giuseppe Valditara, menntamálaráðherra Ítalíu, í grein ítalska miðilsins Ansa að takmarkanirnar séu gerðar til að forðast „gettóbekki“ í...
Banna búrkur og níkab - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Banna búrkur og níkab - Vísir
Haft er eftir Giuseppe Valditara, menntamálaráðherra Ítalíu, í grein ítalska miðilsins Ansa að takmarkanirnar séu gerðar til að forðast „gettóbekki“ í...
Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá - Vísir
Hann segir „vík milli vina“ Guðmundar Inga og Ingu Sæland og þess vegna verði málið dramatískt. Guðmundur Ingi hafi fylgt henni eins og skugginn í um ...
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu Vaðstígur 3 Snyrtilegt 40 fermetra hús við Vaðstíg 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið...
TUI increases flights to the Canary Islands for summer 2027
📅 25.09.2026 👁️ 2
TUI increases flights to the Canary Islands for summer 2027
TUI has announced an increase in flights to the Canary Islands for summer 2027, adding capacity to Tenerife South airport, and additional services to ...
Endur­skoða samning SÁÁ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Endur­skoða samning SÁÁ - Vísir
Töluvert hefur gengið á hjá SÁÁ eftir að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. Í kjölfarið tilkynntu Valge...
Vilja tryggja skil milli stjórnar SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vilja tryggja skil milli stjórnar SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar
Til umræðu er að skipa nýja þriggja til fimm manna stjórn yfir þá heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Stjórnin á að tryggja fagleg gæði og góða stjórn...
Endurskoða samninginn um heilbrigðisþjónustu SÁÁ
📅 25.09.2026 👁️ 2
Endurskoða samninginn um heilbrigðisþjónustu SÁÁ
Til umræðu er að skipa nýja þriggja til fimm manna stjórn yfir þá heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Stjórnin á að tryggja fagleg gæði og góða stjórn...
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin - Vísir
Upplýsingar um framkvæmdir sem þessar og samninga sem þeim tengjast eru ríkisleyndarmál en rússneskum blaðamönnum BBC tókst að koma höndum yfir ýmis g...