Ekki hefur verið hægt að leggja fólk inn á Vog þessa vikuna vegna skorts á starfsfólki. Ekki verður heldur hægt að taka inn fólk í næstu viku eins og gert væri við hefðbundnar aðstæður. Reynt verður að taka við nýjum skjólstæðingum á mánudag og föstudag í næstu viku en fjölga þarf læknum til að starfsemin geti orðið í samræmi við markmið og samninga.
Uppsagnir og veikindaleyfi heilbrigðisstarfsfólks í þeirri óánægjuöldu sem risið hefur innan sjúkrahússins hafa orðið til þess að mun færri fá meðferð þessa dagana en vera ætti. Fyrr í vikunni voru 25 innritaðir á spítalann en pláss er fyrir 25.
Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, sagði í vikunni að nýting sjúkrahússins þyrfti að lagast á næstu einni eða tveimur vikum. Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði í Kastljósi að stjórn SÁÁ hefði nokkrar vikur til að koma meðferðarstarfseminni á Vogi í eðlilegt horf.
Í tilkynningu frá SÁÁ í dag segir að vegna tímabundins skorts á læknum hafi forstjóri SÁÁ og framkvæmdastjóri lækninga á Vogi ákveðið að breyta innlögnum. Nýir skjólstæðingar hafa ekki verið teknir inn á sjúkrahúsið þessa vikuna. Þar segir að þeir sem þegar eru á Vogi fái áfram meðferð með eðlilegum hætti.
Færri verða teknir inn á næstunni en pláss leyfir. Stefnt er að innlögnum á mánudag og föstudag. Þeir sem áttu að leggjast inn á Vog næstu tvær vikur fá símtöl frá starfsfólki með upplýsingum og boði um frekari stuðning meðan fólk bíður eftir innlögn.
„Áfram verður unnið markvisst að því að fá lækna til starfa svo hægt sé að taka við öllum sem þurfa á innlögn að halda,“ segir í tilkynningunni.
Fyrr í dag var greint frá samkomulagi SÁÁ og Sjúkratrygginga um að endurskoða samning þeirra í milli um þjónustu félagsins. Skapa á skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustuna og tryggja armslengd milli félagasamtakanna og sjúkrahússtarfseminnar. Til greina kemur að skipa sérstaka stjórn yfir heilbrigðisþjónustuna.