Um 150 fataverksmiðjum í Bangladess hefur verið lokað vegna verkfalls starfsfólks sem krefst hærri lágmarkslauna.
Starfsfólkið krefst 30 þúsund taka í lágmarksmánaðarlaun sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Lágmarksmánaðarlaun eru nú 12.500 taka sem starfsfólk segir ekki duga til að sjá fyrir sér vegna þess að framfærslukostnaður sé orðinn svo hár.
Í morgun safnaðist verkafólk saman á þjóðveginum milli höfuðborgarinnar Dakka og borgarinnar Tangail til að loka veginum. Mótmælin stöðvuðu umferð í um klukkustund áður en lögreglan skarst í leikinn.
Verkföllin gætu haft keðjuverkandi áhrif
Fataiðnaðurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Bangladess, en hann skilar í kringum fimm billjónum íslenskra króna í útflutningstekjur á ári hverju og nemur 10% af vergri landsframleiðslu landsins.
Um fjórar milljónir manna starfa við fataiðnað í Bangladess og framleiða föt fyrir vörumerki á borð við H&M, Primark, Uniqlo og Zöru. Landið er næststærsti útflytjandi tilbúins fatnaðar í heiminum á eftir Kína. Verkföllin gætu þar af leiðandi haft keðjuverkandi áhrif á alþjóðlega kaupendur.
Fyrr í mánuðinum sagði breska ríkisútvarpið BBC frá því að hundruð fataverksmiðja í Bangladess hefðu þurft að loka eftir margra daga mótmæli starfsfólks. Þá brutust út átök í mótmælum í Dakka þar sem mótmælendur lokuðu vegum, unnu skemmdarverk á verksmiðjum og kveiktu í ökutækjum. Þá kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu sem beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum. Lögregla greindi síðar frá því að tugir mótmælenda hefðu verið handteknir.