Jökull og Davíð í Kaleo tóku nokkur lög og fólk skellti sér í böðin. Rebekka Rut Marínósdóttir tók myndir af viðburðinum sem má skoða að neðan.
Reykjaböð voru opnuð í september en unnið hefur verið að uppbyggingu svæðisins síðustu fimm árin.
Reykjaböð í hnotskurn
Reykjaböð voru opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru í Árhólmum 5 í Hveragerði við rætur Reykjadals. Baðlónið er um 900 m², 37–40°C heitt steinefnaríkt jarðhitavatn með aðgangi að bar. Á útisvæðinu er gufubað, tveir kaldir pottar og Kneipp-vaðlaug. Um er að ræða fjárfestingu upp á fjóra milljarða króna.
Í baðhúsinu eru níu upplifunarrými: snjóherbergi, vatnsgufa, náttúrulaug, köld laug, sána, flotlaug og upplifunarsturtur, slökunarlaug við arineld, skrúbbupplifun ásamt setustofu.
Miðað er við að tæplega 300 gestir geti sótt lónið í einu. Hægt er að greiða almennt aðgangsverð fyrir aðgang að baðlóni og útisvæði eða Signature sem felur í sér aðgang að baðhúsinu.
Eigendur Reykjabaðanna eru Hveraberg - þróunar- og fjárfestingarfélag í ferðaþjónustu og Dionysus - fjárfestingarfélag og Icelandia – ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hveraberg rekur einnig Gróðurhúsið og The Greenhouse Hotel í Hveragerði.
Lónið er hannað af Arnaldi Schram hjá Reykjavík arikitektum og Hálfdáni Pedersen og Þórði Orra Péturssyni hjá Mustard & T hönnunarstofu.