Þetta staðfestir Björn Leifsson, eigandi World Class líkamræktarstöðvanna, í samtali við fréttastofu.
Hann segir að ungi maðurinn hafi komið með kærustu sína á laugardagskvöld í Laugar og ætlað sér að smygla henni inn í líkamsræktarstöðina. Hann gaf upp kennitölu en hafi síðan ráðist á starfsmann og slegið hann.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.
Jón Þór Karlsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að ungur maður hafi verið handtekinn í Laugum um klukkan níu í gærkvöldi. Hann segir að strákurinn hafi sýnilega verið mjög ölvaður og var látinn gista í fangaklefa lögreglunnar.
Björn tók einnig það sama fram, að hann hafi sýnilega verið undir einhvers konar áhrifum. Þá man hann ekki til þess að slíkt hafi komið gerst áður.
„Sem betur fer,“ bætir Björn við.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.