Minnisblaðið er stílað til fjárlaganefndar Alþingis frá forstjórum heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Forstjórarnir eru Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HHS, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN, Lúðvík Þorgeirsson, forstjóri HVEST og Þórarna Gró Friðjónsdóttir, forstjóri HSA.
Áætlaður rekstrarhalli ársins 2026 er á bilinu fimm til fimmtán prósent af veltu en það er misjafnt eftir stofnunum. Það gerir um fimm milljarða króna og bætist sú upphæð við uppsafnaðan halla fyrri ára.
„Meginástæða hallans er að stofnunum hefur ekki að fullu verið bættur aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga sem ríkið gerði í lok árs 2024. Enn liggur ekki fyrir staðfesting á því hvort sá kostnaður vegna áranna 2025 og 2026 verði bættur að fullu,“ segir í minnisblaðinu.
Flestar stofnanirnar hafi sent bréf og gert grein fyrir hallanum en í svarbréfum heilbrigðisráðuneytisins segi að stofnunum beri að laga reksturinn að fjárveitingum.
„Að óbreyttri fjármögnun krefst það aðgerða sem geta haft veruleg áhrif á þjónustuna.“
Fjögur atriði
Með minnisblaðinu óska forstjórarnir sex eftir því að í fjárlögum fyrir árið 2027 verði rekstrargrunnur stofnananna leiðréttur og styrktur til frambúðar. Slíkur vandi verði ekki leystur með einskiptisframlögum heldur þurfi fjárheimildir að endurspegla raunverulegan kostnað við þjónustuna.
Fjögur atriði eru sérstaklega listuð sem atriði sem þurfi að leiðrétta. Það fyrsta er full fjármögnun kjarasamninga þar sem launabætur þurfa að standa undir raunverulegum kostnaði.
„Kjarasamningur við lækna fól meðal annars í sér breytingar á vaktafyrirkomulagi, styttingu vinnuvikunnar og aukinn frítökurétt vegna staðinna vakta. Þessu fylgdi fjölgun stöðugilda og aukinn afleysingakostnaður. Viðbragðsvaktir lækna eru mikilvægur þáttur þjónustunnar á landsbyggðinni og fjármögnun þeirra þarf að taka mið af kostnaði við að tryggja mönnun allan sólarhringinn,“ segir í minnisblaðinu.
Annað atriðið er raunhæf fjármögnun hjúkrunarrýma og húsnæðis. Smærri hjúkrunareiningar nái síður stærðarhagkvæmni en stofnanirnar hafi tekið við rekstri fámennra hjúkrunarheimila frá sveitarfélögunum. Erfitt sé að reka þau án halla.
„Jafnframt þarf að leiðrétta misræmi milli húsnæðisgjalds og ríkisins og raunverulegra leigugreiðslna til FSRE og annarra leigusala. Dæmi eru um að greidd húsaleiga sé þriðjungi hærri en húsnæðisgjaldið. Framlög til umönnunar geta ekki staðið undir þessum ófjármagnaða húsnæðiskostnaði.“
Ekki mætt mismunandi þróun landshluta
Í þriðja lagi meta forstjórarnir svo að fjárveitingar til heilsugæslu þurfi að fylgja íbúaþróun og breytingum á þjónustuþörf á hverju svæði. Hin almenna hækkun fjárheimilda hafi ekki mætt nægilega mismunandi þróun landshluta. Þar er tekin sem dæmi mikil íbúafjöldun á Suðurlandi og Suðurnesjum.
Sömuleiðis þurfi að taka mið af aldurssamsetningu, dreifðri byggð, fjölda starfsstöðva og öðrum þáttum sem hafi áhrif á umfang og kostnað þjónstunar.
Að lokum þurfi að fjármagna sjúkraflutninga en slíkur rekstur falli utan kjarnastarfsemi heilsugæslustöðva.
„Þjónustan er vanfjármögnuð og endurskoða þarf fjármögnun hennar. Fjárheimildir þurfa að endurspegla umfang flutninga, vegalengdir, viðbúnað og vaxandi kröfur um mönnun, menntun og öryggi,“ segir í minnisblaðinu.
„Jafnframt þarf að taka mið af grunnkostnaði hverrar starfsstöðvar, óháð fjölda flutninga. Ferðaþjónusta og samþjöppun sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu auka enn álag á sjúkraflutninga.“
Þurfi að vera raunhæfar og fyrirsjáanlegar
Forstjórarnir leita vegna þessa til fjárlaganefndar og óska eftir því að hún beiti sér fyrir varanlegri leiðréttingu á rekstrargrunni heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Stofnanirnar munu áfram vinna að hagræðingu og umbótum.
„Til að sú vinna skili varanlegum árangri þurfa fjárheimildir að vera raunhæfar og fyrirsjáanlegar. Fjármögnun nýrra verkefna kemur ekki í stað fullnægjandi fjármögnunar grunnþjónustunnar.“
Öflug heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni sé forsenda öryggis íbúa, jafns aðgengis að þjónustu og byggðaþróunar.