Unglingadeildin Ugla kveikti á friðarkertum í Himnastiganum í Kópavogi og flutti séra Pétur Ragnhildarson hugvekju. Sigurður Ingimarsson flutti lagið I Think of Angels eftir tónlistarmanninn KK.
Að samverustundinni lokinni bauð skátafélagið Kópar upp á heitt kakó og kleinur við skátaheimilið.
Hjálparsveit skáta í Kópavogi var einnig viðstödd samverustundina og sýndi alls konar tæki. Slysavarnardeildin gaf einnig öllum sem komu endurskinsmerki.
Einnig var komið saman í Reykjavík og var Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra þar með erindi. Hann boðaði þar aðgerðir til að stemma stigu við hraðakstri og efla umferðaröryggi.