Evklíð var skotið á loft fyrir þremur árum en hann er sérstaklega hannaður til þess að rannsaka þróun alheimsins frá Miklahvelli og varpa ljósi á hulduefni og hulduorku sem eru talin meginuppstaða hans.
Evrópska geimstofnunin hefur áður birt stakar myndir frá sjónaukanum. Nú hefur hún hins vegar opinberað fyrsta stóra gagnasafnið. Það spannar hátt í milljarð vetrarbrauta á svæði næturhiminsins sem jafnast á við 9.500 skífur fulls tungls að stærð. Gögnunum var safnað á um þrettán mánaða tímabili.
Í hátt í öld hafa vísindamenn vitað að alheimurinn er ekki stöðugur heldur þenst hann út með sívaxandi hraða. Sú útþensla er ekki möguleg nema alheimurinn innihaldi mun meiri efni og orku en menn geta séð eða mælt með beinum hætti.
Staðallíkan heimsfræðinnar gerir því ráð fyrir að sýnilegt efni eins og stjörnur og vetrarbrautir sé aðeins lítill hluti af innihaldi alheimsins. Svokallað hulduefni sé um 27 prósent af efnisinnihaldinu og hulduorka um 68 prósent.
Þessi huldufyrirbæri eru síðan talin hafa ráðið miklu um hvernig alheimurinn þróaðist og hvernig efni dreifðist um hann í vetrarbrautir og þyrpingar þeirra.
Nota náttúruleg stækkunargler til að rannsaka fjarlæg fyrirbæri
Í þessum fyrsta stóra skammti frá Evklíð er að finna um það bil fimmtán þúsund mögulegar sterkar þyngdarlinsur, fleiri en öll áður þekkt fyrirbæri af því tagi.
Sterkar þyngdarlinsur eru ákaflega fágæt fyrirbæri sem veita mönnum aðgang að ævafornum og fjarlægum vetrarbrautum sem væru annars utan seilingar.
Þegar vetrarbrautir eru í beinni sjónlínu á milli jarðarinnar og enn fjarlægari vetrarbrauta sveigir þyngdarsvið þeirra ljósið frá fjarlægari vetrarbrautunum og magnar upp eins og stækkunargler. Stjörnufræðingar vonast til þess að nota þessi linsuáhrif til þess að mæla og reikna út hvernig hulduefni dreifist um alheiminn.
„Sterk linsuáhrif veita okkur einstaka innsýn í myrkan alheiminn og gera okkur kleift að „vigta“ einstakar vetrarbrautir, þar á meðal ósýnilegt hulduefni þeirra, og kanna hvernig alheimurinn þenst út,“ er haft eftir Natalie Lines frá Háskólanum í Portmouth á Englandi og einum vísindamannanna við Evklíðsverkefnið, í tilkynningu á vef ESA.
Aðeins brot af verkefni sjónaukans
Gögnin mynda grunninn að nýju og nákvæmu þrívíddarkorti af hluta alheimsins. Slíkt kort á að hjálpa vísindamönnum að skilja útþensluhraða alheimsins og hvernig hulduorka hefur haft áhrif á hann.
Auk mynda í sýnilegu og nærinnrauðu ljósi er litrófsgreiningu á rúmlega 160 milljónum fyrirbæra að finna í gögnum Evklíðs.
Með slíkri greiningu geta vísindamenn reiknað út fjarlægð og áætlað efnasamsetningu vetrarbrauta. Þannig verður hægt að staðsetja vetrarbrautir í tíma og rúmi og kortleggja hvernig þær dreifast í þyrpingar um alheiminn sem tengjast vef hulduefnis sem spannar milljónir ljósára.
Um sextíu milljónir mögulegra dulstirna er einnig að finna í gögnum Evklíðs. Dulstirni eru virkar vetrarbrautir sem skína margfalt bjartar en aðrar vetrarbrautir vegna þess að í miðju þeirra eru risasvarthol sem gúffa í sig efni.
Þrátt fyrir umfangið er fyrsti gagnaskammturinn aðeins um fjórtán prósent af þeim hluta næturhiminsins sem Evklíð er ætlað að kortleggja. Næsti gagnapakki á að koma út um mitt næsta ár en í honum verða meðal annars veikar þyngdarlinsur og útreikningar á því hvernig vetrarbrautir og þyrpingar þeirra raðast upp í stórgerð alheimsins.