Ný listasýning í miðbænum á Selfossi hefur fengið mikla athygli en þar sýna fatlaðir listamenn verk sín frá Ási styrktarfélagi. Verkin eru unnin úr ull og leir.
Sýningin er í Gallerí Listaseli í nýja miðbænum en Ás styrktarfélag býður upp á vinnu og virkni fyrir rúmlega 230 manns í mismunandi starfshlutföllum. Á sýningunni sýna aðeins nokkrir listamenn verk sín. Leiðbeinandi þeirra er Þórey Gylfadóttir.
„Sýningin byggist á því að enginn getur allt og allir geta eitthvað. Þannig að við höfum mörg tækifæri til að koma mörgu að í sömu hlutunum og vinnum þannig í sameiningu að þessum stórkostlegu listaverkum,” segir Þórey og bætir við. „Ég er mikið hérna fyrir austan og mér finnst þetta æðislegt gallerí".
Sýningin er sölusýning og Þórey hefur meira en nóg að gera við að koma með fleiri og fleiri verk í galleríið því þau seljast svo vel.
„Við erum með þæfingaverk, þetta eru dropar sem eru settir á alls konar verk í kringum það. Við erum með leir og það er bara það sem við erum með til sýnis núna en þetta er bara dropi í hafið miðað við það sem við erum að gera,” segir Þórey stolt.
Þórunn Klara á nokkur verk á sýningunni en hvað finnst henni skemmtilegast að gera?
„Þurrþæfa”.
Þú ert algjör snillingur?
„Já”, segir Þórunn Klara.
Sýningin verður opin allan nóvember í galleríinu á opnunartíma þess.