Björgunarsveitir og strandgæsla björguðu í gær 1.488 flóttamönnum á fjórtán bátum undan ströndum Kanaríeyja. Spænski miðillinn El País segir að ekki hafi jafnmargt flóttafólk komið til eyjanna á einum degi undanfarin 32 ár.
Fólkið er sagt vera frá Vestur-Afríkulöndunum Senegal, Gambíu og Máritaníu. Ríkisstjórn Spánar og héraðsyfirvöld á Kanaríeyjum komust að samkomulagi í síðustu viku um fjárhagslegan stuðning við brottflutning flóttafólks frá eyjunum til meginlandsins.
Reuters greinir frá því að fimm og hálfu prósenti færri flóttamenn hafi komið til Kanaríeyja það sem af er ári samanborið við sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi óvænt fjölgun í október aukið þrýsting á björgunarsveitir eyjanna, ekki síst þeirra minnstu og fámennustu.
Tólf bátanna fjórtán komu að landi á El Hierro, sem er minnst Kanaríeyja. Siglingaleiðin yfir Atlantshafið frá Vestur-Afríku til Kanaríeyja er einhver sú hættulegasta sem um getur og þar hefur fjöldi fólks á flótta farist. Fyrr í nóvember týndu þrjátíu og fjórir lífi þegar bátur þeirra sökk undan norðvesturströnd Senegal.