Um 350 þúsund manns mótmæltu í Prag í dag fyrirætlunum stjórnvalda í Tékklandi um að setja ríkisútvarp landsins á fjárlög í stað afnotagjalda. Því fylgir um 15% niðurskurður á fjármagni.
Mótmælendur telja þetta gera ráðherrum kleift að hafa áhrif á fréttaflutning eins og fordæmi séu fyrir, til dæmis í Slóvakíu og Serbíu. Yfirvöld segja ekkert slíkt standa til.
Alþjóðleg samtök blaðamanna og starfsmenn ríkisútvarpsins hafa mótmælt þessum áætlunum. Skipuleggjendur segja mótmælin líklega hafa verið með þeim stærstu í sögu landsins.
Fyrr í mánuðinum fóru starfsmenn tékkneska ríkisútvarpsins í verkfall.