Ungur karlmaður var handtekinn fyrir utan World Class í Laugum í gær að sögn Björns Leifssonar, eiganda líkamsræktarstöðvarinnar. Vísir greindi fyrst frá.
Björn segir starfsmanninn hafa hlotið heilahristing og hálsríg eftir að maðurinn sló hana niður. Hann hafi verið í annarlegu ástandi og augljóslega undir áhrifum.
„Þetta er bara svakalegt,“ segir Björn.
Maðurinn hafi reynt að gefa upp ranga kennitölu í afgreiðslu til að smygla kærustu sinni inn á stöðina. Starfsmenn hafi reynt að vísa honum á dyr en hann brugðist illa við og slegið starfsmanninn niður.
Hann segir lögreglu hafa handtekið manninn fyrir utan stöðina og fært hann burt í járnum. Hann fái aldrei að koma inn fyrir dyr World Class aftur. Björn segir að nýlega hafi verið tekið á öryggismálum í líkamsræktarstöðinni. Yfirleitt sé öryggisvörður í stöðinni um fimm tíma á dag. Hann muni ekki eftir sambærilegu atviki eins og því í gær.
„Ég man ekki til þess að það hafi verið ráðist á starfsmann hjá mér, ég tala nú ekki um kvenkyns.“