Yfirvöld í Eistlandi saka Rússa um að hafa gert tilraun til að kveikja í drónaverksmiðju fyrirtækisins Threod Systems sem framleiðir langdræga njósna- og árásardróna. Utanríkisráðherrann Margus Tsahkna segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að öllum leiðum yfir landamærin verði lokað 1. desember.
Hann rökstyður lokunina með því að sterkar vísbendingar séu um að leyniþjónusta Rússlandshers, GRU, hafi fyrirskipað skemmdarverk fyrirtækinu. Ráðherrann segir að Rússar verði að skilja að fjandsamlegum aðgerðum gegn Eistlandi fylgi afleiðingar. Ekki verði litið fram hjá tilraunum til að ógna eða grafa undan öryggi landsins.
Eistneski ríkismiðillinn ERR greinir frá því að í gærmorgun hafi verið brotist inn í höfuðstöðvar fyrirtækisins og tilraun gerð til íkveikju með því að hella niður eldfimum vökva. Leyniþjónustan handtók átta manns vegna málsins, alla búsetta í Lettlandi. Þetta er í annað skipti sem reynt hefur verið að kveikja í eistnesku vopnafyrirtæki.
Margo Palloson, yfirmaður leyniþjónustunnar Kapo, segir atvikið augljóslega enn eina tilraun Rússa til að fremja hermdarverk í Eistlandi. Forsætisráðherrann Kristen Michal segir deginum ljósara að innbrotið sé hluti af umfangsmiklum ógnunum í garð Evrópuríkja til að draga úr stuðningi við Úkraínumenn.