Flest bendir til þess að það sé erfiðara að fá vinnu í dag en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt samantekt BHM var atvinnuleysi 5,9 prósent í haust, rúmu einu prósentustigi hærra en á sama tíma í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira var 14 prósent í september og hefur ekki verið jafn hátt síðan vorið 2021 á tímum kórónuveirufaraldursins.
Um 34 þúsund manns vantaði vinnu eða meiri vinnu, samanborið við tæplega 29 þúsund árið á undan. Laus störf á öðrum ársfjórðungi þessa árs voru rúmlega 3500 – rúmum þriðjungi færri en á sama tíma í fyrra.
„Ákveðin kólnunarmerki á vinnumarkaði“
„Það eru ákveðin kólnunarmerki á vinnumarkaði,“ segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM.
„Hagstofan heldur utan um mælikvarða sem kallast slaki á vinnumarkaði og það er svona breiðari mælikvarði en atvinnuleysi og mælir þá líka fólk sem vill og getur unnið meira, eins og fólk í hlutastarfi og fleira,“ segir Ingvar. Svo erum við líka að sjá að lausum störfum er að fækka þannig að það eru rauð ljós að blikka í mælaborðinu.“
Áhyggjuefni að staðan hafi ekki verið jafn slæm síðan á tímum kórónuveirunnar
Stjórnvöld þurfi að fylgjast náið með og grípa inn í áður en í harðbakkann slær. Það sé áhyggjuefni að hlutfall þeirra sem vilja vinna eða fá meiri vinnu hafi ekki verið jafn hátt síðan á tímum Covid.
„Þetta eru svona fyrstu merkin áður en fyrirtæki fara í að segja upp mörgu fólki og slíkt. Þá byrja þau að fækka ráðningum, fækka vinnustundum og fleira en þetta eru fyrstu merkin,“ segir Ingvar.
„Við erum ekki komin jafn langt og í covid en það er ljóst að það þarf að fylgjast náið með stöðunni og við þurfum að vera tilbúin til að breyta um kúrs ef þess þarf.“
Uppsagnir hjá sveitarfélögum, til að mynda fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg nýverið, eru ekki komnar inn í tölfræðina.
„Svo við viljum líka beina sjónum að því að aðhaldið má ekki vera þannig að líka vinnumarkaðurinn verði alveg undir sko.“ Horfa þurfi á hlutina í stærra samhengi. „Og fylgjast vel með öllum mælikvörðum og vera tilbúin með staðbundin inngrip ef þess þarf,“ segir Ingvar Freyr.