Ottó fæddist 4. mars 1970 og lést í Reykjavík laugardaginn 14. nóvember. Foreldrar hans eru Otto Davíd Tynes flugstjóri, látinn 2. júlí 2018, og Bryndís Guðmundsdóttir flugfreyja. Systkini hans eru Sverrir Tynes, Salome Tynes og Gunnar Örn Tynes. Dóttir hans og hjartagull er Tinna Tynes, fædd 2005, nemi í sviðslistum.
Ottó ólst upp í Vogahverfinu, gekk í Langholtsskóla og síðan í Menntaskólann við Sund, þaðan sem hann útskrifaðist 1991.
Að neðan má heyra Ottó flytja frumsamda lagið Óð í söngkeppni framhaldsskólanna árið 1991 fyrir hönd MS.
Ottó var hæfileikabúnt og gleðisprengja, vinamargur og vinsæll, og hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Hann var Þróttari af lífi og sál, æfði körfubolta í æsku og lék um tíma með unglingalandsliði Íslands.
Hann stofnaði hljómsveitina Ottó og Nashyrningana, sem fór í frækna tónleikaferð um Sovétríkin árið 1989. Meðal annarra hljómsveita sem hann stofnaði eða starfaði með voru Formaika, Íslenskir tónar, Talúla, Geirfuglarnir, Miðnes og Dónadúettinn. Með þeim hljóðritaði hann lög og gaf út plötur.
Ottó sendi frá sér sólóplötuna „Happiness hold my hand“ árið 2019 undir nafninu Wasabi.
Hann nam heimspeki og kennslufræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan meistaraprófi. Einnig starfaði hann mikið með unglingum í félagsmiðstöðvum og skólum og kenndi í Austurbæjarskóla hin síðustu ár.
Í gegnum tíðina vann hann enn fremur við kvikmynda- og auglýsingagerð. Ottó var alla tíð sískapandi og fékkst við tónlist, myndbönd og myndlist, auk þess sem hann skrifaði greinar og hugleiðingar um hin ýmsu mál.
Fjölskylda og vinir minnast Ottós með ást, hlýju og söknuði.