Þetta kemur fram í svari innviðaráðuneytisins við fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem spurt er hversu miklum fjármunum ráðuneytið og stofnanir þess hafi varið í auglýsingar á síðustu fjórum árum. Sams konar fyrirspurn var send á öll ráðuneytin en hafa ekki svör borist frá öllum.
Fyrirspurnin kom í kjölfar þess að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sendi tilmæli á stofnanir sínar um að beina auglýsingakaupum sínum til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla. Þá ákvað Stjórnarráðið, sem er samheiti yfir ráðuneyti landsins, að breyta verklagi sínu á þá vegu.
Einnig var það í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar að bæta stöðu fjölmiðla eftir að alþjóðleg samkeppni hafði grafið undir rekstrinum og mikill atgervisflótti orðið úr fjölmiðlum.
Ein milljón á einum mánuði
Í svari innviðaráðuneytisins segir að birtur sé samanlagður kostnaður innviðaráðuneytisins, Byggðastofnunar, Fjarskiptastofu, Samgöngustofu og Vegagerðarinnar. Þá fellur enginn kostnaður til vegna auglýsinga hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Allur kostnaðurinn, frá september árið 2022 til september árið 2026, nemur 208.595.025 krónum. 75 prósent af heildarkostnaðinum, eða tæpar 157 milljónir, fóru til innlendra fjölmiðla. Sextán prósent til viðbótar, rúmar 33 milljónir, fóru til innlendra aðila en ekki fjölmiðla.
Níu prósent af fjármagninu sem var varið í auglýsingar fóru síðan til erlendra samfélagsmiðla. Það gera rétt tæpar nítján milljónir króna. Rúm ein milljón af þeim tæplega nítján fór til samfélagsmiðlanna í ágúst árið 2025.
Dýrasti mánuðurinn var í október árið 2023. Þá var rétt tæpum átján milljónum króna varið í auglýsingar. Tólf af þeim fóru til innlendra fjölmiðla.
Meirihluti til íslenskra fjölmiðla
Líkt og kom fram hér að ofan sendi Hildur fyrirspurnir á öll ráðuneytin. Auk innviðaráðuneytisins hafa mennta- og barnamálaráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið svarað fyrirspurninni.
Alls hefur félags- og húsnæðismálaráðuneytið varið tæpum 125 milljónum króna í auglýsingar, þar af fóru 68 prósent til innlendra miðla. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur varið rúmum 56 milljónum og fóru rúmar fimmtíu milljónir til innlendra fjölmiðla.
Að lokum hefur mennta- og barnamálaráðuneytið varið rúmum 133 milljónum króna í auglýsingar, þar af 112 milljónum til innlendra fjölmiðla.