Pólskir aðgerðarsinnar hafa komið á fót skápum þar sem konur geta sótt sér þungunarrofspillur eins og í sjálfsala.
Í Póllandi eru ein ströngustu lög um þungunarrof í Evrópu. Það er aðeins leyfilegt ef þungunin er til komin af völdum glæps, svo sem nauðgunar eða sifjaspells, eða ef lífi eða heilsu móðurinnar er ógnað.
Justyna Wydrzyńska er aðgerðarsinni hjá samtökunum Abortion Dream Team. Hún sýndi fréttamönnum þýska fjölmiðilsins Deutsche Welle húsakynni Abotak, sem hún segir fyrstu þungunarrofsmiðstöð Póllands.
Fá PIN til að sækja lyfin
Í Abotak eru pillusjálfsalarnir, 22 bleikir skápar. Til að fá aðgang að skáp fær kona sendan PIN-kóða frá samtökunum Women help Women. Áður þarf hún þó að fylla út eyðublað um heilsufarsupplýsingar sem lesið er yfir af lækni.
Í skápnum er pakki sem inniheldur tvö lyf, mifepristone og misoprostol. Þau er hægt að taka fram að 14. viku meðgöngu. Lyfin eru ekki aðgengileg í Póllandi og því þarf að skaffa þau erlendis frá.
Lagaumhverfið í Póllandi er hins vegar nokkuð loðið hvað þetta varðar því lyfin eru samþykkt af Evrópusambandinu. Pólverjar, sem eru borgarar ESB, ættu því að mega panta og taka lyfin án þess að það teljist glæpur.
Fyrst til að vera fangelsuð
Hver sá sem aðstoðar konu við að rjúfa þungun í Póllandi getur farið í fangelsi í allt að þrjú ár. Fyrir þremur árum fékk Wydrzyńska að kenna á þessum lögum þegar hún varð fyrsti aðgerðarsinninn í Evrópu til að vera dæmdur sekur fyrir að stuðla að þungunarrofi.
Þá hafði hún sent konu sem bjó við heimilisofbeldi þungunarrofspillu. Áfrýjunardómstóll sneri dómnum við árið 2025 og fyrirskipaði að málið skyldi tekið upp að nýju.
Wydrzyńska telur að með pillusjálfsalanum, sem hefur fengið heitið Abortomat, séu tæknilega engin lög brotin. Það sé vél, en ekki persóna, sem afhendir pillurnar. Hún viðurkennir þó að hún sé ekki viss hvort það muni standast skoðun í réttarsal.
Abotak og Abortomat-inn eru í byggingu andspænis pólska þinginu og með því vilja aðgerðarsinnarnir senda Donald Tusk og öðrum ráðamönnum afdráttarlaus skilaboð.
Tusk lofaði breytingum
Tusk hét því í kosningabaráttu sinni árið 2023 að breyta lögunum svo að þungunarrof yrði almennt leyfilegt fram að tólftu viku meðgöngu. Stjórn hans hefur þó ekki tekist að koma breytingunum í gegn.
Í lok október samþykkti pólska þingið tvö lagafrumvörp til breytinga á lögum um þungunarrof. Annað frumvarpið miðaði að því að afglæpavæða þungunarrof og aðstoð við þungunarrof. Hitt frumvarpið sneri að niðurfellingu úrskurðar stjórnlagadómstóls frá árinu 2020 sem bannaði að þungun sé rofin þegar fósturgallar eru fyrir hendi.
Búist er við því að Karol Nawrocki forseti Póllands muni beita neitunarvaldi sínu þegar frumvörpin koma á borð hans. Hann er íhaldssamur og mótfallinn því að þungunarrof sé leyfilegt.