Mótmælin hófust fyrst í lok október þegar fyrstu umræðu um frumvarp um afnám afnotagjalda af ríkisfjölmiðlinum var komið í gegnum þingið um miðja nótt. Fyrirhuguðu breytingarnar myndu skera fjárveitingar ríkissjónvarps- og útvarps niður um fimmtán prósent.
Mótmælendurnir telja að afnám afnotagjaldanna og að fjármagna fjölmiðla einungis með fjárlögum ríkisins myndi veita ráðherrum aukið vald yfir fréttastofum. Verið sé að fylgja fordæmi Ungverjalands, Póllands, Serbíu og Slóvakíu þar sem ríkisstjórnir grófu undan sjálfstæði fjölmiðla.
Um það bil 350 þúsund manns sóttu mótmælin sem haldin voru í Prag í dag að sögn forsvarsmanna hreyfingarinnar Milljón augnablik fyrir lýðræðið, sem skipulögðu mótmælin. Með því varð hún ein sú fjölmennasta í sögu landsins. Þó nokkrir mótmælendanna settu upp þríhyrndar pappírshúfur sem er vísun í tékkneska teiknimyndapersónu sem heitir Večerníček og hefur orðið tákn mótmælanna.
Í umfjöllun The Guardian kemur fram að aðrir hafi borið borða sem á stóð „Við gefum ekki fjölmiðlana frá okkur“.
Sætt gagnrýni samtaka
Skipuleggjendurnir sögðu í yfirlýsingu að þau krefðust þess að ríkisstjórnin drægi áform sín til baka. Þau lýstu einnig yfir áhyggjum af því að flokkarnir sem mynduðu ríkisstjórnina væru ógn við lýðræðið.
„Babiš og ríkisstjórn hans halda augljóslega að þau komist upp með hvað sem er … að þau geti hunsað sérfræðinga, þaggað niður í gagnrýnendum og farið með lýðræðislegar stofnanir eins og sína eign,“ sagði hreyfingin.
Frumvarpið hefur einnig sætt gagnrýni frá alþjóðlegum fjölmiðlasamtökum en til að mynda hafa Samband evrópskra útvarpsstöðva, Evrópusamband blaðamanna og Blaðamenn án landamæra gagnrýnt áformin. Þau líkja þeim við breytingar Roberts Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, og Viktors Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands.
„Móðursýkisleg upphrópun“
Andrej Babiš, forsætisráðherra Tékklands sem var kjörinn í fyrra, gaf lítið fyrir mótmælin og sagði mótmælendur æsa upp almenning með tilhæfulausum fullyrðingum.
Hann skrifaði skoðanagrein um það sem hann taldi vera sjö lygar sem stjórnarandstaðan breiddi út um afnotagjöldin. Þar sagði hann gagnrýnina vera „móðursýkislega upphrópun“. Gjöldin nema um 1150 íslenskum krónum.
„Við munum undir engum kringumstæðum skipta okkur af ritstjórnarstarfi,“ sagði hann einnig.
Ríkisstjórn Babis er samansett af ANO, hreyfingunni hans
Babiš fer fyrir samsteypustjórn sem í eru hreyfing hans ANO, hægriflokkurinn Ökumenn fyrir sig sjálfa og flokkurinn Frelsi og beint lýðræði. Sá síðasti er gegn innflytjendum og hliðhollur Rússum. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er ANO með um það bil 30 prósenta fylgi.