Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.
LS Retail hefur höfuðstöðvar á Íslandi en starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Portúgal, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Malasíu.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að í skipulagsbreytingunum hafi stöðugildum verið fækkað um 39 sem jafngildir 10% af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins. Eftir breytingarnar eru starfsmenn fyrirtækisins 249, þar af 122 á Íslandi.
Endurskipulagninguna megi að hluta rekja til verulegs samdráttar í opinberum stuðningi við rannsóknir og þróun hugbúnaðar á Íslandi.
„LS Retail hefur um árabil notið rannsóknar- og þróunarstyrkja sem veittir eru í gegnum Rannís. Sá stuðningur hefur nú verið skertur verulega með afturvirkum áhrifum á yfirstandandi rekstrarár og komandi ár,“ segir í svari fyrirtækisins.
Þar er einnig haft eftir Magnúsi Norðdahl, forstjóra LS Retail, að ákvörðunin hafi verið erfið.
„Markmið okkar er að byggja upp öflugra og markvissara fyrirtæki til framtíðar á sama tíma og við höldum áfram að skila nýsköpun og verðmætum til viðskiptavina okkar og samstarfsaðila. Við erum afar þakklát þeim samstarfsfélögum sem nú hverfa til annarra verkefna, fyrir þeirra framlag til LS Retail.“