Loftslagsskuldin er framtíðarskuld

Loftslagsskuldin er framtíðarskuld

Loftslagsskuldin er framtíðarskuld

Loftslagsskuldin er framtíðarskuld

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um og ábyrgð gagn­vart kom­andi kyn­slóð­um.

Í huga margra snýst umræðan um loftslagsmál um eitthvað óáþreifanlegt í fjarlægri framtíð sem snerti okkur og okkar lífsstíl ekki. Einhver önnur en við leysi málið og því þurfum við ekki að breyta neinu, hvað þá að taka tillit til umhverfis – og loftslagsmála. 

Við vorum minnt á það í vikunni að þessi hugsunarháttur og afstaða til loftslagsmála er blekking og mjög kostnaðarsöm frestunarárátta sem bitnar á framtíðarkynslóðum.

Þá voru birtar nýjustu tölur um stöðu losunar á Íslandi og þar með stöðu loftslagsmála, en um er að ræða nýjustu framreikninga íslenskra stjórnvalda sem kynntir voru af Umhverfis – og orkustofnun. 

Tölurnar sýna að miðað við núgildandi aðgerðir stefnir í að samfélagslosun Íslands verði umtalsvert meiri árið 2030 en skuldbindingar okkar og markmið kveða á um. Þar sé munurinn á markmiðum okkar á samdrætti losunar miðað við árið 2005 og því sem við munum ná sé um 20%. Tuttugu prósenta munur á yfirlýstum markmiðum um samdrátt í losun og þess sem við munum ná er ansi stórt bil að brúa og verkefnið því mun stærra en flest okkar grunaði. 

Þetta 20% bil þarf ekki aðeins að brúa út frá loftslaginu heldur líka út frá fjárhagslegum hagsmunum. Stjórnvöld hafa sagt sjálf að til að ná markmiðinu þurfi að grípa til umfangsmeiri aðgerða.

Aðgerðir í samfélagslosun Íslendinga liggja beinast við en sú tegund losunar vó um 26% af heildarlosun Íslands í fyrra en hefur aðeins dregist saman um 10% frá árinu 2005. Samfélagslosun felur í sér losun frá vegasamgöngum, landbúnaði, sjávarútveg, jarðvarmavirkjunum, vörunotkun og úrgangsmál.

Það kostar að skulda aðgerðir gegn loftslagsbreytingum

Það útheimtir gríðarlega háar fjárhæðir að gera of lítið fyrir loftslagið. Bilið á milli þess sem okkur ber að gera og þess sem við höfum verið að gera í því að draga úr losun hefur á sér risavaxinn verðmiða. 

Stjórnvöld hafa sjálf bent á að kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðaleysis geti orðið verulegur og þá helst vegna kaupa á losunarheimildum ef Ísland stendur ekki við loftslagsskuldbindingar sínar. Í skýrslu umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um efnahagsleg áhrif viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir á Íslandi frá því í fyrra, er talað um að kostnaðurinn við kaup á losunarheimildum geti numið milljörðum eða jafnvel tugum milljarða króna. Auðvitað getur verð á losunarheimildum breyst og endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir. En áhættan er veruleg og raunveruleg.  

Þessi gríðarlega mikli kostnaður getur auðveldlega fallið á íslenska ríkið vegna þess að við náðum ekki að draga úr losuninni hér heima fyrir. Það þýðir opinberir fjármunir sem skila sér ekki í að flýta orkuskiptum, ekki í nýjum skilvirkari innviðum eða hreinni og öflugri almenningssamgöngum, stuðningi við græn nýsköpunarverkefni eða þróttmeira íslensku samfélagi sem tekst á við áföll og breytingar af völdum umhverfis - og loftslagsbreytinga. 

Það er hárrétt að það kostar mikla fjármuni að ráðast í orkuskipti. Það kostar mikið að byggja upp almenningssamgöngur. Að styðja við heimili og fyrirtæki í grænni umbreytingu kostar. Það kostar að endurheimta náttúru og styrkja innviði gegn afleiðingum loftslagsbreytinga. 

En það kostar okkur miklu meira að gera of lítið of seint. Opinber fjárútlát til að kaupa losunarheimildir er einfaldlega sokkinn kostnaður af því við náðum ekki nægum árangri.

„Það kostar okkur miklu meira að gera of lítið of seint“

Loftslagsaðgerðir sem stuðla að félagslegu réttlæti og betri lífskjörum

Skynsamlegasta leiðin til að verja almannafé er því að fjárfesta í fyrirbyggjandi aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Vinstri græn lögðu áherslu á það á síðasta landsfundi sínum í mars 2026 að farið verði af stað með raunverulegar fjármagnaðar loftslagsaðgerðir með skýrum og tímasettum markmiðum um samdrátt í losun. Jafnframt leggjum við áherslu á hraðari orkuskipti í samgöngum og atvinnulífi og á réttlát umskipti þar sem byrðum grænna umskipta verði dreift með sanngjörnum hætti. Það er gríðarlega mikilvægt út frá félagslegu sjónarhorni, því aðgerðir gegn loftslagsbreytingum sem ekki taka mið af félagslegu réttlæti munu aldrei ná langt. Við þurfum að horfa á loftslagsmálin í samfélagslegu samhengi. 

Almenningssamgöngur þurfa að vera samfelldar og skilvirkar þannig að fólk geti treyst á þær í daglegu lífi. Rafbílar þurfa að vera viðráðanlegri kostur fyrir fleiri en þau sem hafa mestar tekjur. Húsnæði fólks þarf að vera sparnýtið og þar með hagkvæmara. Fyrirtæki þurfa skýra umgjörð og fyrirsjáanleika til að fjárfesta í orkuskiptum. 

Aðgerðir til að sporna gegn loftslagsbreytingum eru ekki bara verkefni sem líta vel út, heldur skipta sköpum fyrir lífskjör fólks og lífsgæði okkar og eru eitt stærsta réttlætis- og öryggismál samtímans. 

Fylgjum settum markmiðum um losun af alvöru

Umhverfis – og orkumálaráðherra lýsti því yfir 12. september sl. að hann boði nýja nálgun og ný vinnubrögð í loftslagsmálum og að “ekki dugi að elta ESB í þessum málum” og að Ísland verði að setja sér eigin markmið í að draga úr losun. Ég veit satt að segja ekki hvernig við ætlum að trompa 50-55% samdrátt sem ESB hefur unnið eftir en óska ráðherranum og okkur öllum góðs gengis við það og heiti stuðningi VG við öll góð markmið. En við vitum að það er ekki nóg að setja fram metnaðarfull markmið um losun. Núverandi framreikningar stjórnvalda benda til þess að við séum á leið í aðeins 21% samdrátt árið 2030 miðað við árið 2005 og 30 % árið 2035, í stað markmiðanna um 41% samdrátt í samfélagslosun árið 2030 og 50-55% samdrátt í losun 2035.

Stóra spurningin er hvort við séum tilbúin að fylgja eftir markmiðum okkar með pólitískri forgangsröðun, fjármagni og framkvæmdum. Svarið hlýtur að vera að við einfaldlega verðum að verja meiri fjármunum í að leysa losunarvandann, ekki greiða fyrir hann eftir á og greiða þar með mun meira fyrir slugshátt eða afneitunina. Við þurfum líka að vinna eftir loftslagsstefnu sem rímar við ábyrga ríkisfjármálastefnu og félagslegt réttlæti, því það er góð stefna. 

Það verða komandi kynslóðir sem þurfa að glíma við afleiðingar sem skapast af því ef okkur tekst ekki sporna gegn loftslagsbreytingum. Við getum ekki látið það verða eftirmæli okkar.

Höfundur er formaður Vinstri grænna

#framtíðarskuld #loftslagsskuldin

Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27311/loftslagsskuldin-er-framtidarskuld/

📰 Aðrar fréttir

Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 0
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 0
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 0
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 0
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
📅 25.09.2026 👁️ 0
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
The former DUP leader was found guilty of 18 counts of child sex abuse, including one of rape, in June.
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
📅 25.09.2026 👁️ 1
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
There have been too many cases of staff abusing patient trust, and enough is enough, the head of the NHS in England says.
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
📅 25.09.2026 👁️ 1
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
📅 25.09.2026 👁️ 1
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 2
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
📅 25.09.2026 👁️ 2
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
The BBC's financial situation "may well mean" some channels and stations close, Matt Brittin says.
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
Setningarathöfn Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík eða Riff fór fram með pompi og prakt í gær. Dagskráin í ár er sérstaklega vegleg og þá ha...
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
Rætt var um aðdraganda afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar úr embætti barna- og menntamálaráðherra á Alþingi í gær og sást Guðmundur hrista hausinn ...
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
Upplausn hefur ríkt innan SÁÁ sem rekur meðferðarstofnanir við fíknivanda. Bæði forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga létu nýlega af störfum vegna ós...
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands meðan Netanjahú flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Send...
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
Meirihluti nefndarinnar greiddi atkvæði með því að banna tvo lista fyrir kosningarnar og að meina einstökum arabískum stjórnmálamönnum að bjóða sig fr...
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
Rætt verður við Guðmund Inga í hádegisfréttum Bylgjunnar en þar ræðir tjáir hann sig um viðbrögð Ingu Sæland og umræðuna um málið á Alþingi í gær. Sjú...
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
📅 25.09.2026 👁️ 2
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður Fréttin25. september 2026Innlent, PistlarLeave a Comment Samsett mynd: fh. Eldur Smári Kristinsson, Snorri...
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
📅 25.09.2026 👁️ 2
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
Ekki hefur verið hægt að leggja fólk inn á Vog þessa vikuna vegna skorts á starfsfólki. Ekki verður heldur hægt að taka inn fólk í næstu viku eins og ...
Stefna á að innrita fólk á Vog í næstu viku

Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
Hávær mótmæli hafa brotist út á Spáni eftir að 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madrid fyrr í vikunni.Mótm...
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna Fréttin25. september 2026ErlentLeave a Comment „Enginn þarf...
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
Fyrsti fundur fer fram í Öskju í Vatnsmýri í dag, föstudaginn 25. september kl. 11:30 til 13:00. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspít...
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
Stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla skorar á Alþingi að falla frá 1.351 milljónar króna aðhaldskröfu á háskóla og rannsóknarstarfsemi. Aðhaldskr...
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
📅 25.09.2026 👁️ 2
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
Ráðherrar veita ekki viðtöl eftir reglulegan ríkisstjórnarfund í dag. Ríkisstjórnin fundar venju samkvæmt á þriðjudögum og föstudögum og eftir flesta ...
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
📅 25.09.2026 👁️ 4
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hefur staðið í stappi undanfarið við tæknifyrirtækið Meta eftir að Facebook stal...
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
📅 25.09.2026 👁️ 4
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
Tim Janus, einn besti kappátsmaður heims, er látinn aðeins 49 ára. Janus vann sér það til dæmis til frægðar að borða 54 pylsur í einni máltíð.Breska b...
Valkyrjur brugga launráð
📅 25.09.2026 👁️ 3
Valkyrjur brugga launráð
Valkyrjur brugga launráð Fréttin25. september 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Guðmundur Ingi mennta- og barna...
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
📅 25.09.2026 👁️ 3
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
A woman who accused Jay-Z of raping her when she was 13 now says she has never met the rap superstar.
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
📅 25.09.2026 👁️ 3
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 10. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan samkomulag náðist...
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
📅 25.09.2026 👁️ 3
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
Vaxandi þungi virðist vera í þeim skilaboðum sem koma frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að EES-ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Liechtenstein, þ...
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
Þættirnir eru sýndir á streymisveitunni Sýn+ og kemur fyrsti þáttur inn í dag. Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ó...
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
Hann hefur komið sér vel fyrir í fallegu einbýlishúsi úti á Seltjarnarnesi. Björn er augljóslega mikill smekkmaður enda er húsið fallega hannað að inn...
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
📅 25.09.2026 👁️ 3
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
Daniel Thomas is accused of criminal damage after a video appeared to show him slashing at a dinghy.