Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þessi hópur er alltaf í kringum 30 prósent og býr við skilgreinda fátækt. Helsta orsökin er ástandið á húsnæðismarkaði, þetta eru frekar leigjendur en fólk í eigin húsnæði og einstæðar mæður eru fjölmennar í þessum hópi. Betra hefði verið á sjá áherslur á tekjuhliðinni en niðurskurð í fjárlagafrumvarpinu. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu