Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að MTV-tónlistarverðlaunin voru veitt árið 2000. Hún átti að hafa verið þrettán ára gömul.
Báðir neituðu þeir sök og hætti hún við ákæruna í fyrra. Jay-Z og Beyoncé, tónlistarkona og eiginkona hans, kærðu þá konuna og lögfræðinga hennar.
Nú hefur konan dregið fullyrðingarnar alveg til baka samkvæmt umfjöllun BBC. Þar er vísað í yfirlýsingu sem var bætt við málið á fimmtudag.
„Shawn „Jay-Z“ Carter nauðgaði mér aldrei. Ég hef aldrei hitt eða talað við herra Carter. Herra Carter sýndi aldrei fram á óviðeigandi hegðun gagnvart mér,“ segir í yfirlýsingunni.
„Fullyrðingar mínar um að herra Carter og herra Combs hafi nauðgað mér á meðan þriðja stjarnan horfði á eru rangar. Ekkert er til í neinum ásökunum mínum á hendur herra Carter.“
Hún geri sér grein fyrir því að falskar ásakanir hafi valdið Jay-Z gríðarlegum sársauka, þjáningu og skaða. Tekið er fram í umfjölluninni að hún segist ekki hafa fengið neina peninga frá rapparanum vegna nýjustu yfirlýsingarinnar.
Málsókn Jay-Z og Beyoncé á hendur lögfræðinga konunnar heldur þó enn áfram.