Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni.
Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsinu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þetta sé þriðja kannabisræktunin á Vestfjörðum sem hafi fundist í umdæminu á þessu ári.
Þar segir einnig að maðurinn sem var handtekinn hafi verið yfirheyrður og síðan sleppt úr haldi. Málið teljist upplýst.