„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat eða lyf og geti ekki farið,“ sagði úkraínska tenniskonan Oleksandra Oliynykova í viðtali eftir að hún hafði betur í leik á móti í Singapúr á dögunum.
Bandaríski fjölmiðillinn ABC News hefur eftir starfsmönnum mannúðarsamtaka í Úkraínu að bærinn sé orðinn að „helvíti á jörðu“. Hungur vofi yfir íbúum. Þeir sem reyni að forða sér verði að fara yfir svæði þakið jarðsprengjum. Þá hefur ABC News eftir Tetiönu Hasanenko, yfirmanni Úkraínuhers á þessum slóðum, að þeir sem eftir séu eigi líklega ekki eftir að lifa veturinn af.
Borist hafa fregnir af því að Rússlandsher geri árásir á fólk á ferli úti og að hermenn gangi um vopnaðir og skjóti fólk. Vegna árása Rússlandshers hefur ekki verið hægt að flytja neyðarvistir til bæjarins.
Rússar hertóku Oleshky 2022. Bærinn er í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Um 24.000 manns bjuggu í bænum og nágrenni fyrir allsherjarinnrás Rússa. Talið er að um 2.000 manns séu þar núna, þar af 50 börn.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir íbúum að börn þjáist af vannæringu og þurfi nauðsynlega læknisaðstoð. Aðeins einn spítali er starfandi. Hann er opinn nokkra daga í viku og þar er aðallega verið að aflima fólk sem er sært eftir árásir.
Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag hvatti Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, alþjóðasamfélagið til að þrýsta á Rússa að hleypa neyðaraðstoð inn í borgina. Fram kemur í umfjöllun BBC að síðasta matarsending hafi borist í maí. Í sumar hafi fólk borðað grænmeti sem það hafi ræktað og eins látið sér til munns inngresi.