Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Landsþing sambandsins, sem lauk í dag, markaði stefnu fyrir næstu fjögur árin í sveitarstjórnarmálum og nýtti tækifærið til að senda frá sér ályktun um betri samskipti og samráð við ríkið.
„Við köllum þetta samskiptavanda að hluta til að minnsta kosti. Það verður verkefni nýrrar stjórnar að endurvekja samtalið við ríkisstjórn og Alþingi. Og leiða vonandi stór mál sem hafa lengi verið óafgreidd til lykta í eitt skipti fyrir öll,“ segir Almar Guðmundsson, formaður stjórnar SÍS.
Ályktunin sem var samþykkt var harðorð í garð þess samskiptavanda sem hefur einkennt samskipti ríkis og sveitarfélaga undanfarin ár. Hún segir: „Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir þá kröfu til Alþingis og ríkisstjórnar að breytingar verði á áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin eiga ekki að vera síðasti hlekkurinn í keðjunni þegar ríkisvaldið tekur stefnumarkandi ákvarðanir.
Sem dæmi um slök samskipti við sveitarfélög af hálfu ríkisins voru tekin meðal annars: Ákvörðunin um að afnema 1,1 milljarð króna úr fjárlögum til innleiðingar farsældarlaga og kostnaðarskiptingu vegna barna með fjölþættan vanda.
Ætla ekki að hækka gjaldskrár óhóflega
Þá var einnig samþykkt ályktun um að sveitarfélög myndu takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% um áramót en einungis ef að ríkisstofnanir myndu gera slíkt hið sama. „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin.“
Almar taldi ályktunina sterka og að allir fulltrúar þingsins hafi verið einhuga um hana: „Ríkisstjórnin, ríkisvaldið og Alþingi þarf að koma með okkur í þetta átak.“
Sveitarfélögin eru sameinuð á þessum vettvangi
Þingið hófst á miðvikudag og voru rúmlega 150 fulltrúar frá öllum sveitarfélögum landsins saman komnir. Farið var um víðan völl í umræðum sem snerust meðal annars að miklu leyti um velferðar-, innviða- og menntamál. En eru hagsmunir sveitarfélaga allir þeir sömu?
„Nei, það sem einkennir þetta þing er að við erum auðvitað mörg, misjöfn og út um allt land. Við getum sagt að það sé rauður þráður. Við erum öll baráttuglöð í því að taka þátt í kjaramálunum. Við þurfum gott samtal og samstarf við ríkisvaldið og það sameinar okkur. En auðvitað er í mörg horn að líta þegar kemur að hagsmunum svæðanna og hinna smáu og hinna stóru og það er eins og gengur en við erum sameinuð,“ segir Almar.