Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfalli flugvirkja var aflýst eftir tæpan hálfan sólarhring á miðvikudag. Fundurinn stóð í um tvær klukkustundir.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir Icelandair og flugvirkja hafa sammælst um að vinna áfram á grundvelli innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram síðustu helgi og að nú verði einblýnt á þau atriði sem ekki náðist saman um í aðdraganda verkfallsins.
Samninganefndirnar hittast aftur á mánudag.
Icelandair fundaði einnig með Félagi íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara í dag. Næsti fundur verður á mánudag.