Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór Hallgrímskirkju. Fundurinn var liður í herferð samtakanna sem kallast Mannúðin mun sigra – virðum réttindi fólks á flótta.
„Þetta er liður í þeirri vitundarvakningu að minna íslensk stjórnvöld á að vernda og virða réttindi þessa fólks, standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og tryggja það að það fái réttláta málsmeðferð í kerfinu og auðvitað erum við að berjast á móti því að fólk sé frelsissvipt án þess að vera grunað um nokkurn glæp og er ég þá að vísa í brottvísunarbúðir sem stjórnvöld eru að vinna að því að koma á fót,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi.