Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé mikill þrátt fyrir að fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum hafi setið undir ræðu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær.
Heyrði að ræða Netanjahú hefði verið óhugnaleg
„Ég valdi að vera á sama tíma á ráðherrafundi til stuðnings UNWRA, sem er Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, en það hefur verið þannig, eins og Espen kollegi minn í Noregi hefur dregið fram, að Norðurlöndin hafa verið með fulltrúa í sætinu og mannað það til þess að hlusta á ræður í ráðherravikunni. Með þessu erum við náttúrulega ekki með neinum hætti að taka undir eitt eða neitt.“
Þorgerður segist hafa heyrt að ræða Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefði verið óhugnaleg.
„Ég heyrði að ræða Netanjahú hefði verið afleit, hún hefði í rauninni verið mjög óhugnaleg. Ég vil draga fram að afstaða Íslands til bæði hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnar, hún er alveg skýr. Fundir mínir og samtöl á allsherjarþinginu undirstrika nákvæmlega þetta, að stuðningur Íslands við Palestínu og tveggja ríkja lausnina, hann er mikill.“
Áratugahefð að hafa fulltrúa í sæti
Ísland er með fulltrúa í salnum þó að misjafnt sé hvort það séu ráðherrar eða aðrir.
„Ég valdi að vera annars staðar, að vera á fundi um UNWRA, og fyrr um daginn hafði ég verið á fundi um tveggja ríkja lausnina. Afstaða Íslands er mjög skýr í þessu máli en mér finnst bara miður að heyra af svona ræðum sem fela í sér hreinan og beinan óhugnað.“
Þannig að það ætti ekki að leggja neina merkingu í að við höfum ekki gengið í burtu?
„Þetta hefur verið áratugahefð, hjá okkur og Norðurlöndunum, að hafa fulltrúa mannaðan í sæti þegar ræður eru haldnar í þessari viku. En eins og ég segi, það er alveg skýrt hver afstaða Íslands til þessa hræðilega ástands fyrir botni Miðjarðarhafs.“
Þorgerður segir Ísland tala fyrir einörðum stuðningi bæði við Palestínu og tveggja ríkja lausn hvar sem borið er niður. Mikilvægt sé að halda áfram að vinna að henni.
„Þróun mála á Vesturbakkanum er auðvitað gríðarlegt áhyggjuefni, þar sem Ísraelar, að mínu mati, eru markvisst að draga úr möguleikum á tveggja ríkja lausninni. Það höfum við rætt mjög mikið hér á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.“