Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.
Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Lokað verður frá nýju gatnamótunum að Þingtorgi/Selásbraut. Hjáleiðir verða um Arnarnesveg og Vatnsendaveg. Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir.