Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gefið að sök er að hafa girt niður um manninn og stungið járnröri inn í endaþarm hans og svo í munn.
Einn þeirra er auk þess ákærður fyrir að hafa tekið árásina upp og dreift myndskeiðinu á samfélagsmiðlum. Þá eru allir fimm ákærðir fyrir að hafa svipt manninn frelsi í um tvær klukkustundir, í félagi við óþekktan mann.
Þetta kemur fram í ákæru sem fréttastofa fékk senda í dag að lokinni þingfestingu. Þinghald í málinu er lokað.
Frelsissviptur og beittur grófu ofbeldi
Málsatvik samkvæmt ákærunni eru þau að tveir mannanna sóttu manninn á bíl og óku með hann til höfuðborgarsvæðisins. Þeir komu við á nokkrum stöðum og að verslun Krónunnar við Jafnasel í Reykjavík, þar sem tveir grímuklæddir menn komu inn í bílinn.
Þeir settust hvor sínum megin við manninn og bundu hendur hans saman með benslum, tóku hann hálstaki og héldu honum föstum. Hann var auk þess sleginn í rifbeinin, meðal annars með barefli úr járni, og hótað frekara ofbeldi og lífláti.
Á meðan á þessu stóð var bílnum ekið að Elliðahvammsvegi í Kópavogi og síðan eftir vegslóða. Bíllinn var að endingu stöðvaður á malarplani skammt frá Hólmaþingi í Kópavogi, þar sem maðurinn var dreginn út úr bílnum og eftir jörðinni.
Þar veittust ákærðu að manninum, slógu hann margsinnis í bæði höfuð og líkama, meðal annars með hamri, rúðubrjóti og járnröri og spörkuðu margsinnis í höfuð hans og líkama.
Skilinn eftir fáklæddur og skólaus
Næst voru buxur mannsins girtar niður og járnröri stungið að minnsta kosti einu sinni inn í endaþarm hans. Járnrörinu var svo stungið upp í munn mannsins. Maðurinn var svo skilinn eftir, fáklæddur og skólaus.
Maðurinn hlaut yfirborðsáverka á höfði, meðal annars mar á vinstra gagnauga, eymsli og bólgu yfir hægra kinnbeini, blóð í vinstri eyrnagangi, mar á brjóstkassa, yfirborðssár eða rispur á framanverðum brjóstkassa, mar og yfirborðsáverka á fæti, meðal annars bólgu, mar og eymsli utanvert á hægri ökkla, bólgu, mar og eymsli yfir báðum ristum og bólgu yfir hægra handarbaki, fimmta miðhandarbeini, samkvæmt ákæru.
Tók upp myndskeið af árásinni og setti í dreifingu
Þá er einn fimmmenninganna auk þess ákærður fyrir brot gegn kynferðislegri friðhelgi. Honum er gefið að sök að hafa tekið upp myndskeið á meðan á árásinni stóð sem sýnir að járnröri er að minnsta kosti einu sinni stungið inn í endaþarm mannsins, og síðan dreift myndbandinu með því að senda það í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat á einn meðákærðu og einnig á spjallhópinn „Fótbolti á Boys“, sem hann, ásamt öllum meðákærðum, er í, auk annarra ónafngreindra manna.
Krefst tæplega 12 milljóna í bætur
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á farsímum, rauðum rúðubrjót, felgulykli og hníf með blaðalengd 28 sm.
Fimmmenningunum, og eftir atvikum fleiri sakborningum sem kunna að koma fram, er gert að greiða manninum skaðabætur að fjárhæð 11.990.000 kr. ásamt vöxtum vegna frelsissviptingar, meiriháttar líkamsárásar, kynferðisbrots og ráns sem átti sér stað sama dag og árásin.