Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti heldur því fram að SpaceX ljúgi um takmarkanir sem settar hafa verið á Starshield-kerfið í því skyni að hægja á tengingunni.
Starshield er hernaðarútgáfa af Starlink-kerfi SpaceX, sem er í eigu auðjöfursins Elons Musk, en kerfið gerir Úkraínumönnum meðal annars kleift að tengjast neti á víglínunum og stýra árásardrónum sínum.
SpaceX segir að engum takmörkunum hafi verið komið á heldur hafi hægt á tengingunni vegna tæknilegra örðugleika.
Ráða ekki við rússneska dróna
Zelensky staðhæfir að SpaceX segi ekki satt. Takmarkanir á hraða netsins hafi nú verið í gildi í fimm daga og að ljóst sé að ákvörðunin sé tekin á pólitískum grundvelli, ekki tæknilegum.
Eftir að Úkraínuher varð var við takmarkanirnar geta drónar hersins ekki flogið hraðar en 161 kílómetra á klukkustund, annars rofnar sambandið. Því er til að mynda ekki hægt að stöðva hraðskreiða Shahed-dróna Rússlands.
Zelensky segist hafa falið herforingjum sínum að ræða málið við forsvarsmenn SpaceX, sem og varnarmálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna.