Kirkja í Danmörku gæti verið föl fyrir eina krónu. Það er að minnsta kosti það sem Morten Graversen, formaður barna- og fræðslunefndar sveitarfélagsins Struer á Vestur-Jótlandi segir í samtali við danska ríkisútvarpið.
Sveitarfélagið fékk kirkjuna að gjöf árið 2025 þegar frísöfnuðurinn í Voldhøj var lagður niður en sveitarfélagið segist ekki hafa not fyrir húsnæðið.
Aðspurður hvað það kosti að kaupa kirkjuna segir Graversen að hún fáist mjög ódýrt. Beðinn um að gera betur grein fyrir verðinu segir hann: „Ég myndi næstum segja eina krónu. Þannig að þetta er nokkuð ódýrt.“
Til að koma í veg fyrir allan misskilning er vert að geta þess að hér er talað um eina danska krónu. Umreiknað í íslenskan gjaldmiðil fengist kirkjan því strangt til tekið á 18 krónur.
Myndi kosta 8 milljónir íslenskar að rífa húsið
Graversen segir að sennilega myndi það kosta bæjarfélagið um 450 þúsund danskar krónur, eða um 8 milljónir íslenskra króna, að rífa bygginguna. Því sé þess virði að kanna hvort einhver hafi áhuga á að taka húsnæðið yfir áður en til þess kemur.
Struer er tæplega tíu þúsund manna bær sem stendur við Venø-flóa í Limafirði. Bærinn er sennilega þekktastur fyrir að hýsa höfuðstöðvar raftækjafyrirtækisins Bang & Olufsen þar sem um fimmtungur bæjarbúa starfar.