Ísraelsher greindi frá því rétt í þessu að þeim hefði tekist að fella hátt settan liðsmann Hamas, Samir Abu Younis. Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu hersins og öryggisþjónustunnar Shin Bet.
Abu Younis var yfirmaður í Al-Qassam-sveitunum, hernaðararmi Hamas-samtakanna, og stýrði Rafah-sveitinni. Hann var 53 ára gamall.
AP-fréttaveitan segist hafa heimildir fyrir því að Abu Younis hafi fallið í loftárás í AL-Mawasi, vestur af Khan-Younis á Gaza. Þá hafa almannavarnir á Gaza staðfest við fréttaveituna að þau hafi tekið á móti líki hans.
Tveir aðrir særðust í árásinni en Abu Younis er sagður hafa verið aðalskotmarkið.
Árásir þrátt fyrir vopnahlé
Ísrael og Hamas hafa ítrekað sakað hvort annað um að brjóta vopnahlé sem tók gildi í október 2025. Á fimmtudag voru sex drepnir og á þriðja tug særðust í loftárás á Nasser-sjúkrahúsið í Khan Younis, eitt fárra sem enn eru starfhæf að einhverju leyti.
Þriðjudaginn áður féllu sjö manns, þar á meðal 13 ára drengur, í aðgerðum ísraelska hersins á Gaza-ströndinni. Herinn sagði hins vegar að skotmörk þeirra hefðu verið vígamenn.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gaza hafa um 1600 Palestínumenn látist frá því að vopnahléð tók gildi. Ísraelsher segir að á sama tímabili hafi sjö ísraelskir hermenn látist, auk eins verktaka sem starfaði fyrir herinn.