Fyrir fimmtán árum lést Eyþór Darri Róbertsson þegar bíll sem hann var farþegi í hafnaði á húsvegg við Geirsgötu. Ökumaðurinn var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi og hlaut sex mánaða skilorðsbundinn dóm en samkvæmt dómnum varð hann Eyþóri að bana við ofsaakstur og ók hann bílnum á minnst hundrað kílómetra hraða á klukkustund. Við settumst niður með móður Eyþórs Darra, Lilju Huld Steinþórsdóttur.
„Eyþór var rosalega mikill húmoristi og með skellandi hlátur, honum fannst allt fyndið sem hann sagði. Hann var mjög hjartahlýr og barngóður. Alltaf ef maður var einhvers staðar og svo kom lítið barn var hann fyrstur til að koma og tala við barnið. Og það var svolítið svona miðað við eldri strákinn minn, þá var hann miklu hændari mér. Hann var svona lítill skuggi sem fylgdi mér alltaf þegar hann var lítill.“
Lést daginn fyrir 18 ára afmælið
Eyþór Darri lést daginn fyrir átján ára afmælið sitt. Hann var ásamt öðrum farþegi í bíl og sögðu vitni að ökumaðurinn hefði verið í spyrnu við annan bíl þegar hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði á húsveggnum. Allir voru þeir í bílbelti og enginn undir áhrifum.
„Ég fæ hringingu frá lögreglu um að sonur minn liggi meðvitundarlaus uppi á spítala. Og ég þakka bara fyrir það að góð vinkona var hjá mér þetta kvöld og kom mér upp á spítala því ég hrundi bara.“
Við tók tveggja sólarhringa dvöl á sjúkrahúsinu þar sem fjölskyldan beið á milli vonar og ótta. Eyþór Darri var með mikla höfuðáverka. Honum var haldið sofandi í tvo sólarhringa en þegar ljóst var að hann myndi ekki vakna aftur var slökkt á vélunum.
„Hann var í bíl með tveimur vinum sínum og sagan segir að þeir hafi verið í spyrnu en þarna var 50 kílómetra hámarkshraði og samkvæmt rannsóknarskýrslu þá er hraðinn á bílnum alveg frá 119 upp í 130, minnir mig að það hafi verið. Það gefur auga leið að drengurinn sem keyrði missir stjórn á bílnum og lendir á húsvegg. Eyþór situr aftur í þessum bíl og hann deyr líklega samstundis. Hann var í tvo sólarhringa á spítala. Þannig að slysið gerist 12. ágúst 2011 og hann deyr 14. ágúst, tveimur sólarhringum síðar og hefði svo orðið 18 ára þarna þann 15. ágúst.“
Heimurinn hrundi
Lilja lýsir því hvernig heimurinn hafi hrunið. Foreldrar Eyþórs Darra höfðu lagt mikið upp úr því að ræða við börnin sín um hættur í umferðinni. Pabbi hans kom til að mynda sérstökum ökurita fyrir í bíl eldri bróður Eyþórs, sem hann pantaði að utan, en með ritanum gátu foreldrarnir fylgst með ökulagi barna sinna.
„Þetta er bara smá svona aðhald, skilurðu? Bæði fyrir hann og okkur. En eins og ég segi þá keyrði Eyþór bara vel. Hann var náttúrulega búinn að vera með bílpróf þarna í tæpt ár og það hafði aldrei komið neitt upp á sem við þurftum að hafa einhver afskipti af.“
Í dag fer fram alþjóðlegur minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðarslysum. Hér á landi hefur skapast sú venja að tileinka þennan dag einhverjum ákveðnum hópi og í ár beinir Samgöngustofa sjónum sínum að ungum ökumönnum.
Á þessu ári hafa alls tólf látið lífið í umferðinni. Fjögur ungmenni létust í tveimur aðskildum málum, annars vegar á Krýsuvíkurvegi og hins vegar á Miklubraut, en í báðum tilvikum er hraðakstur talinn hafa átt sér stað en málin eru enn til rannsóknar. Lilja Huld segir þungbært að horfa upp á afleiðingar hraðaksturs aftur og aftur.
„Það er rosalega vont, eins og til dæmis fyrra slysið sem var á Miklubrautinni. Við fjölskyldan bara fundum það og töluðum um að þetta stingur mann. Maður fer bara svona aftur í tímann. Maður verður líka bara sár í hjartanu. Maður hugsar bara: Í alvörunni? Hvað er að gerast? En eins og ég segi – maður fer bara svolítið aftur í tímann. Þetta er vont. Hugurinn reikar bara aftur.“
Finnst aukin áhættuhegðun meðal ungmenna í umferðinni
Hún segir það tilfinningu sína að áhættuhegðun meðal ungmenna í umferðinni sé að aukast, tilfinningin sé sú að hraðakstur sé aftur orðinn algengari en áður – og segir Lilja Huld ekki nægilega mikið fjallað um afleiðingar hans.
„Þetta þarf að vera miklu augljósara og miklu meira um það. Það þarf bara, af því að þú kannski segir eitthvað við ungling í dag og hann labbar út úr herberginu og hann man það ekki. Þetta þarf bara að vera fyrir augunum á þeim allan daginn. Kannski bara mynd af bíl sem er ónýtur með þeim skilaboðum að það hafi þrír dáið í þessum bíl. Það þarf bara endalaust að minna fólk á. Af því hraðakstur er ekki slys. Hraðakstur er ákvörðun og sá sem sest undir stýri ber ábyrgð. Það þarf svolítið að fá þau til að finna að þau þurfa að bera meiri ábyrgð,“ segir Lilja.
Þyngja þurfi viðurlög við hraðakstri
Lilja bendir á að sjálf sé hún með bílpróf og keyri venjulegan fólksbíl.
„Ég mætti ekki keyra farþegarútu. Af hverju mega ungmenni keyra bíl sem kemst upp í 200? Það þarf líka eitthvað að hugsa það. Ég má ekki keyra mótorhjól, ég er ekki með próf á það. Af hverju má 17 ára gamall drengur eða stúlka keyra bíl sem kemst svona hratt?“
Lilja segir tilefni til að skoða hvort hækka ætti bílprófsaldurinn upp í átján ára.
„Mér finnst það algjörlega málið, sem hefði átt að vera búið að hugsa fyrir löngu. Það virðist enginn geta tekið ákvörðun um það. Og svo bara ef þau eru tekin að viðurlögin séu meiri. Þau þurfa bara að vera svolítið harðari.“
Enda segir Lilja að nokkrir punktar eða væg sekt bíti ekki. Þyngja þurfi sektir fyrir hraðakstur og þá þurfi þröskuldurinn fyrir sviptingu ökuréttinda að vera lægri.
„Þau þurfa að hafa fyrir þessu. Eins og ég segi, það þarf bara einhver að taka ákvörðun.“
Stjórnvöld sofandi og ábyrgð foreldra mikil
Hvernig finnst þér stjórnvöld hafa staðið sig? Eru þau sofandi þegar kemur að þessum málaflokki?
„Ég hef ekki séð að þau séu að gera neitt. Það er bara þannig. Þannig að vissulega mættu þau gera eitthvað meira. Það þarf einhver að taka bara skrefið og gera hlutina.“
Hún segir ábyrgð foreldra mikla – leggja þurfi áherslu á þeirra ábyrgð þegar kemur að hegðun ungmenna í umferðinni enda finnst henni ekki nógu mikið rætt um ábyrgð foreldra þegar kemur að umferðaröryggi barna. Fræðsla þurfi að vera miklu meiri. Þá þurfi að skoða hvort ökunámið leggi nægilega mikla áherslu á afleiðingar hraðaksturs.
Lærir að lifa með því að hafa misst barnið sitt
Hvernig gerir maður svona áfall upp, er það hægt?
„Nei, það er ekki hægt. Maður lærir auðvitað bara að lifa með því að maður er búinn að missa barnið sitt. Fer svolítið bara svona áfram. Ég er svolítið bara á hnefanum. En auðvitað kemur að því að hnefinn fellur. Ég hef kannski bara reynt að halda mér upptekinni við alls konar.“
Til dæmis með því að hlaupa.
„Ég held ég hafi ekki þekkt neitt annað en að halda áfram. Ég er á lífi, ég á tvö önnur börn og ég á fjögur barnabörn í dag. Þetta gefur manni auðvitað bara mikið, þetta er lífið. Það er nú bara svolítið þannig.“
Þrjú barnabarna Lilju bera nafn Eyþórs Darra.
„Ég hugsa að ég hefði bara ekki fengið að liggja í rúminu og það hefði alltaf einhver komið og sagt: Lilja, þetta gengur ekki, þú verður að koma. Ég er bara alveg sannfærð um það. Ég kann ekkert annað en bara að halda áfram.“
Ekki reið en ósátt
Ertu reið í dag?
„Nei, það er ekki hægt að vera reiður. En ég er ekki sátt, af því ég er auðvitað með einhverja framtíðarsýn sem Eyþór hefði getað haft. Sem er eðlilegt.“
Hún hugsar reglulega hvað Eyþór væri að gera í dag hefði hann lifað.
„Ég held hann væri að vinna með bróður sínum af því að hann rekur fyrirtæki og ég hugsa að hann væri nú búinn að eiga kannski tvö börn og væri kannski líka eitthvað að skapa. Hann var svolítið byrjaður að gera eitthvað skemmtilegt með því að skapa. Þannig að já, hann væri örugglega bara mjög hændur að mér enn þá. Ég hugsa það.“
Klukkan tvö fer fram minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi auk þess sem félög Landsbjargar og annarra viðbragðsaðila standa fyrir táknrænum athöfnum víða um land. Forseti Íslands mun flytja ávarp og stýra einnar mínútu þögn á minningarathöfninni en nánari upplýsingar um dagskrá má finna á vef Samgöngustofu.