Íranski byltingarvörðurinn gerði drónaárás á herstöð Bandaríkjahers í Persaflóaríkinu Barein.
Sírenur ómuðu og bareinsk yfirvöld birtu viðvaranir á samfélagsmiðlum þar sem fólki var ráðlagt að leita skjóls, án þess þó að tilgreina í hverju ógnin fælist.
Íranska ríkisútvarpið staðfesti árásina fyrir skemmstu og sagði byltingarvörðinn hafa beitt sex drónum til að ráðast að bandarísku ratsjárkerfi á Al-Riffa þyrlustöðinni.
Barein hýsir bæði stóra flotastöð Bandaríkjahers og herflugvöll og það gerir landið að skotmarki í áframhaldandi átökum Írans og Bandaríkjanna.