Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að það verði dálítill hæðarhryggur yfir landinu í dag með björtu og köldu veðri, en að búast megi við stöku éljum vestast og um landið norðaustanvert.
Á morgun, mánudag er útlit fyrir fremur hægan vind og bjart veður, en áfram líkur á dálitlum éljum vestast fyrripartinn, en austan kalda og éljum syðst um kvöldið. Áfram kalt. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Þriðjudagurinn verður líklega á svipuðum nótum, kalt og él á stangli, einkum þó við ströndina.
Á vef Vegagerðar kemur fram að víða er hálka eða hálkublettir en vegir víðast hvar opnir. Gott er að fylgjast með vef Vegagerðar fyrir færð og vef Veðurstofu fyrir veðurspá.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og bjart að mestu, en 8-13 og stöku él syðst undir kvöld. Frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.
Á þriðjudag: Austan og norðaustan 3-10. Skýjað og dálítil él austanlands, en víða bjart á vestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag: Breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él við ströndina. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag: Austlæg átt og dálítil él við suðaustur- og austurströndina, annars að mestu þurrt. Frost 1 til 10 stig, en hiti kringum frostmark syðst. Hlýnar heldur um kvölið.
Á föstudag og laugardag: Suðaustanátt og rigning, en sums staðar slydda. Þurrt að kalla norðaustantil. Hlýnandi veður.