Á föstudag settu samgönguyfirvöld í Bandaríkjunum á allsherjarflugbann. Engar vélar máttu fara í loftið en þær vélar sem voru þegar í loftinu fengu að lenda. Ástandið varði í nokkra klukkutíma og kom í ljós að bilunin tengdist útskiptingu koparstrengja fyrir ljósleiðara. Stöðvunin í gær var sú lengsta sinnar tegundar frá árásunum á Bandaríkin 11. september 2001.
Talsverðar seinkanir urðu á ferðum Icelandair um helgina vegna bannsins en einhverjar vélar félagsins höfðu samkvæmt plani átt að fara í loftið meðan á banninu stóð. Það hafði svo keðjuverkandi áhrif og voru seinkanir á ferðum félagsins í gær en nú er planið komið á rétt ról.
Í Bandaríkjunum finna flugfélög þó enn fyrir áhrifum bannsins. Tæplega níu þúsund ferðum var seinkað í gær og 2.400 ferðum aflýst og félögin reyna að komast aftur á rétt plan. Um 27 þúsund flugvélar taka á loft frá bandarískum flugvöllum á hverjum degi, 24 þúsund í innanlandsflugi og um 2.400 í millilandaflugi. Því varð seinkun á um þriðjungi ferða og tíu prósentum ferða aflýst.
Stjórnvöld reyna enn að finna út úr því hvort bilunin hafi tengst vanrækslu fyrirtækisins sem sá um uppfærsluna á koparstrengjunum eða hvort búnaðurinn hafi verið gallaður. Sean Duffy samgöngumálaráðherra hefur sagt flugumferðarstjórnarkerfi ríkisins vera allt of gamalt og að það þurfi að ráðast í miklar uppfærslur á því. Hann og Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi ítrekað óskað eftir fjármagni frá þinginu til að uppfæra kerfið.
„Þetta verður BESTA KERFIÐ nokkurs staðar í heiminum. Mikið af flugumferðarstjórnarkerfi okkar er fimmtíu ára gamalt - FÁRÁNLEGT! Við höfum þegar byrjað á verkefninu en það ætti að uppfæra allt í einu, ekki með litlum uppfærslum hér og þar,“ skrifar Trump á samfélagsmiðla.