Eftir að ekið var á hana fyrir utan skrifstofu hennar þann 19. október var hún í alvarlegu ástandi um langt skeið. Það var ekki fyrr en þann 6. nóvember sem læknar skráðu hana í stöðugu ástandi.
Sjá einnig: Þingkonan missti báða fætur eftir árásina
Maðurinn sem ók á hana á Landcruiser er sagður hafa keyrt ítrekað yfir Haines. Hann er 43 ára gamall og var handtekinn á vettvangi. Maðurinn, sem heitir Brendan Nugent, var ákærður vegna árásarinnar en hann ku eiga við geðræn vandamál að stríða.
Nugent var samkvæmt ástralska ríkisútvarpinu úrskurðaður í gæsluvarðhald strax eftir árásina en hann á ekki að mæta aftur í dómsal fyrr en í febrúar. Enn hefur tilefni árásarinnar ekki verið opinberað.
Eftir árásina sendi faðir mannsins út yfirlýsingu þar sem fram kom að Haines hefði verið fjölskylduvinur í rúm tuttugu ár.
Í yfirlýsingu sinni þakkaði Haines Áströlum einnig fyrir gjafmildi þeirra. Eftir árásina hvatti fjölskylda hennar fólk til að styrkja hjálparsamtökin „Save the Childer“ og söfnuðust fúlgur fjár í kjölfarið.
Óljóst er hvenær hin 65 ára gamla þingkona mun snúa aftur til vinnu. Árásin hefur ýtt undir áhyggjur í Ástralíu hvað varðar öryggi þingmanna þar. Þeir hafa í gegnum árin þótt mjög aðgengilegir og hafa getað gengið um götur landsins án sérstakrar verndar.
Þetta hefur þó orðið þeim erfiðara á undanförnum árum. Í kjölfar árásarinnar var öryggisgæsla ástralskra þingmanna aukin og þá sérstaklega kringum skrifstofur þeirra í kjördæmum þeirra og í höfuðborginni.