Eldflaug með 40 gervihnetti Amazon innanborðs bilaði um tíu mínútum eftir flugtak frá Cape Canaveral í Flórída í Bandaríkjunum í gær. Allir gervihnettir Amazon fóru forgörðum.
Vulcan-eldflaugin var á vegum United Launch Alliance (ULA) sem er samstarfsverkefni Boeing og Lockheed Martin.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu hver orsök bilunarinnar var en þetta misheppnaða geimskot er ákveðið áfall fyrir ULA og Vulcan-eldflaugar þeirra. Boeing og Lockheed Martin stefndu að því að hefja regluleg geimskot fyrir Amazon, en fyrirtækið ætlar að auka við gervihnetti sína vegna sívaxandi umsvifa þess í netþjónustu.
Nú verður Vulcan-eldflaugin þó mögulega kyrrsett í marga mánuði meðan bilanagreining fer fram.
Þetta er í fyrsta skipti sem ULA missir eldflaug en síðan stofnað var til verkefnisins árið 2006 á það að baki yfir 150 vel heppnuð geimskot.