„Ég leyfi mér að vitna í Dag Sigurðsson handboltakappa. Ég sá einhvers staðar haft eftir honum að reynsla væri eitthvað sem maður öðlaðist rétt eftir að maður þyrfti á henni að halda. Það er hverju orði sannara og ég brosi alltaf út í annað þegar ég hugsa um þessa setningu,“ segir Gestur Pálmason markþjálfi hjá Complete og bætir við:
Ég veit ekki hvort tvítugi Gestur hefði verið nægilegur svampur til að móttaka samtalið frá tæplega fimmtugum Gesti um neðangreind atriði en hann fær það hér með.“
Gestur hefði viljað vita þetta þrennt tvítugur:
1. Þú ert hnútur í neti og gerir ekki rassgat einn
„Kæri vinur, þú ert ekki einn í þessu. Aldrei.
Þú ert ekki einstakur með þín vandamál, það er fullt af fólki sem hefur upplifað það sama og þú og komist í gegnum það og það er mikið af fólki sem ber hlýhug til þín. Þú skalt þiggja aðstoð ef á þarf að halda. Heimurinn er léttari ef við berum hann saman, þetta er ekki keppni.
Iðkaðu tengslin við fjölskyldu, vini, vinnufélaga og alla þá sem á vegi þínum verða í kærleika, þakklæti og húmor. Ferðafélagarnir eru mikilvægasti parturinn af ferðalaginu og maður gerir ekki rassgat einn eins og Kristján rokkstjóri á Aldrei fór ég suður sagði svo vel.“
2. Taktu á meðvirkninni
„Þú lætur eins og þú vitir ekki hver þú ert, en þú veist það alveg. Þú þorir bara illa að standa með því. Það væri gott fyrir þig að læra að þú megir vera jafn góður við sjálfan þig og þú ert við aðra.
Það væri líka gott fyrir þig að læra að setja mörk, sinna þörfum þínum og að þú þurfir ekki viðurkenningu annarra til að upplifa að þú sért einhvers virði. Þú þarft ekki að reyna svona mikið. Óttinn við álit annarra er sjálfskapað fangelsi og verðlaunin við að sleppa úr því fangelsi eru þau sömu og úr öllum öðrum fangelsum: frelsi.
Það er ekkert í heiminum eftirsóknarverðara en að vera hamingjusamur, glaður og frjáls.“
3. Iðkaðu andlegt líf og sinntu þroska þínum
„Þú ert andleg vera í jarðneskri upplifun. Ekki jarðnesk vera í andlegri upplifun. Finndu leiðir til að komast í andann, tenginguna, stóra sjálfið. Hvort sem það er í gegnum trú- og lífsskoðunarfélög, einkasamband við æðri mátt að eigin vali, tónlist eða aðra listiðkun, sjálfboðastarf, líkamlegar áskoranir, hugleiðslu eða bænalíf.
Finndu tengingu við eitthvað sem er stærra og meira en þú. Það hjálpar þér að upplifa auðmýkt og setja þig í samhengi.
Það er fyrst og fremst þroski sem gerir þig að verðmætum samfélagsþegn og lífið þess virði að lifa því. Sinntu honum af jafn mikilli áfergju og þú eltist við önnur markmið. Meiri dýpt, meiri breidd.
Ef þú sinnir þessum þremur þáttum þá bíður þín líf sem þú gætir ekki einu sinni látið þig dreyma um.“