Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræðir við Frosta Logason um útlendingamál og breytingarnar sem hún hefur lagt fyrir Alþingi á dvalarleyfiskerfinu. Hún segir að fólksfjölgunin á Íslandi, um fimmtíu þúsund manns frá 2017, hafi ekki byggt á neinni stefnu og að stjórnvöld hafi hvorki haft innsýn né yfirsýn yfir það hverjir væru að koma og hvaðan. Markmiðið sé að hætta með áberandi séríslenskar reglur og færa regluverkið nær því sem gerist á Norðurlöndunum.
Frosti les upp dæmi úr gögnum um karlmann frá MENAPT-landi sem kom hingað árið 2020, fór beint á framfærslu og hefur aldrei unnið. Þorbjörg svarar því hvernig dvalarleyfisfrumvarpið og ný reglugerð eiga að gera kröfu um að fólk geti framfleytt sér. Hún segir líka frá svokölluðum sérfræðingum sem fluttir voru til landsins en reyndust vera sérfræðingar í Pad Thai, þar sem farið var mjög illa með fólk.
Frosti spyr Þorbjörgu hvort almenningur fái að sjá afbrotatölur eftir uppruna. Hún segir frá vinnu ráðuneytisins við nýtt mælaborð um afbrot og fer yfir hvers vegna opnun brottfararstöðvar hefur tafist. Þau ræða líka hvernig skipulögð brotastarfsemi hefur breytt verkefnum lögreglunnar og hvernig eigi að bregðast við þegar fullorðnir fá börn og unglinga til að fremja brot.
Þau takast á um Evrópusambandið og Bandaríkin og um brottfararstöðina, þar sem Frosti ber upp gagnrýni Miðflokksins og Þorbjörg segir hana „ef og hefði pólitík“. Hún viðurkennir að henni hafi fundist erfitt að fylgja Evrópu í því að karlmenn frá Úkraínu sem ekki hafa sinnt borgaralegum skyldum sínum geti ekki sótt um alþjóðlega vernd, og fer yfir skipulagða brotastarfsemi og „crime as a service“, þar sem fullorðnir beita fyrir sig unglingum og börnum. Hún segir að mesta mannúðin felist ekki í því að sturta inn fólki og sjá svo bara til.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/