Eldurinn kviknaði í atvinnuhúsnæði í eigu ökutækjaleigu en breiddi hratt úr sér. Það tók slökkviliðsmenn um tvo klukkutíma að ná tökum á eldinum og enn er óvitað um eldsupptök. Enginn hinna látnu eða slösuðu er ferðamaður og voru flestir heimamenn.
Fire engulfed buildings in Thailand’s popular tourist town of Patong, killing several people and injuring many others. Preliminary reports suggest a short circuit sparked the blaze. https://t.co/twYIrjYHkd
— Al Jazeera English (@AJEnglish) November 16, 2026
Húsið er nærri Patong-strönd sem er einn vinsælasti ferðamannastaður svæðisins.
Í sumar létust 27 manns á bar í Bangkok eftir að eldur kviknaði þar. Erlendir fjölmiðlar segja að taílensk yfirvöld hafi lítið eftirlit með öryggi bygginga í landinu.