„Það er svo rosalega mikið af fólki sem bara tapar“

„Það er svo rosalega mikið af fólki sem bara tapar“

„Það er svo rosalega mikið af fólki sem bara tapar“

Fangelsiskerfið er vanrækt og það er löngu tímabært að byggja nýtt fangelsi enda er Litla-Hraun, sem er langstærsta fangelsi landsins, varla mönnum bjóðandi – hvorki þeim sem þar eru vistaðir né starfsfólki. Hugmyndin um fíkniefnalaus fangelsi er óraunhæf og það hefði skelfilegar afleiðingar að loka á öll samskipti fanga við umheiminn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í 7. þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum.

Mikið mæddi á stjórn fangahjálparinnar Verndar um miðjan níunda áratuginn þegar samtökin keyptu hús í Laugardal í Reykjavík því ekki voru allir sáttir við að fá fyrrverandi fanga í hverfið. Á þeim tíma var ekki hægt að ljúka afplánun á Vernd heldur ráku samtökin áfangaheimili, og höfðu gert lengi, á öðrum stöðum í Reykjavík. Laugateigur 19 er aftur á móti fyrsta húsið í eigu Verndar.

Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri Verndar segir að fjölmargir hafi mótmælt kaupum félagsins á húsinu við Laugateig en Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar, stóð fremst í stafni við að verja samtökin og baráttu þeirra fyrir mannréttindum fanga. Frá 1994 hafa fangar átt kost á að ljúka afplánun á áfangaheimili Verndar í Laugardalnum.

Þráinn segir að Vernd hafi mætt miklum fordómum á þessum tíma alveg eins og Geðhjálp og Samhjálp undanfarin misseri. Þar vísar hann til þess að Geðhjálp hafi neyðst til að setja húsnæði sem nýta átti undir starfsemi skjólshúss á sölu vegna mótmæla nágranna og deilna um kaffistofu Samhjálpar sem átti að opna á Grensásvegi.

Að sögn Þráins eru fordómarnir víða og í 7. þætti Betrunar segir hann frá tilvikum í tengslum starfsemi Verndar.

Þráinn rifjar meðal annars upp í þættinum þegar allt stefndi í að loka þyrfti áfangaheimili Verndar vegna tálbeituaðgerðar í fréttaskýringaþættinum Kompási í byrjun árs 2007.

Maðurinn sem þar um ræðir var dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2004 fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex drengjum og var það einn þyngsti dómur sem kveðinn hafði verið upp í kynferðisbrotamáli á Íslandi. Hann hóf afplánun á Litla-Hrauni í apríl sama ár en þá hafði hann setið gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði. Hann kom á Vernd í október 2006.

Á meðan maðurinn var á Vernd gekk hann í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar hann gerði tilraun til að nálgast barn í gegnum vefinn. Afhjúpun Kompáss leiddi meðal annars til þess að hætt var að vista á Vernd þá sem höfðu brotið kynferðislega á börnum.

„Þá varð það eiginlega þannig að Vernd var nánast komið að því að loka. Álagið var það mikið, ósættið svo svakalegt og skólinn, tómstundir og kirkjan. Það voru allir á hvolfi út af þessu,“ segir Þráinn í 7. þætti Betrunar.

Í greinargerð Fangelsismálastofnunar frá þessum tíma kemur fram að um leið og upp komst að fanginn hefði brugðist því trausti sem honum var sýnt með vistun á áfangaheimilinu var hann fluttur á Litla-Hraun.

Við erum að tala um börn

„Svo hefur auðvitað liðið þessi tími og þessir einstaklingar hafa ekki getað komið á Vernd sem er miður vegna þess að það er mjög mikilvægt að þeir sem hafa brotið af sér með þessum hætti geti komið á Vernd og þá gætum við líka bara sett í samninginn skilyrði um að viðkomandi þurfi að vera í meðferðarsambandi við sérfræðing á þessu sviði. Að öðrum kosti gæti hann ekki komið og ég er alveg klár á því að ef svo væri þá myndi viðkomandi þýðast það og væri bara í rauninni eins og með aðra. En þarna erum við enn og aftur með það sem við töluðum um í upphafi, fordóma, og staða þeirra sem eru gerendur í slíkum brotum ristir dýpra. Við erum að tala um börn,“ segir Þráinn.

Í þáttaröðinni Betrun hefur komið fram að þeir sem brjóta kynferðislega á börnum eiga mjög erfitt uppdráttar innan fangelsa landsins og mæta miklum fordómum af hálfu annarra fanga. Þeir eru í rauninni lægst settir innan fangahópsins.

Þráinn telur að erfitt sé að vinna að endurhæfingu þessa hóps í fangelsum en á Vernd og með rafrænu eftirliti og þeirri tækni sem því fylgir sé hægt að koma í veg fyrir að viðkomandi geti farið á bak við skilyrði sem sett eru fyrir vistun á Vernd.

Ströng skilyrði sett fyrir dvöl á Vernd

Þráinn bendir á að sá sem kemur á Vernd er ekki frjáls maður og ströng skilyrði eru sett fyrir dvöl þar. Hann telur að setja ætti skilyrði um virkni í opnum fangelsum eins og á Sogni, svo sem að fólk þurfi að vakna á ákveðnum tímum og vera í virkni.

„Ég held að það sé mjög gott að við áttum okkur á því að við erum alltaf að tala um einstaklinga og samfélagið í heild sinni. Miðað við þær refsingar sem við beitum þá mun fólk sem í fangelsi fer, ef það deyr ekki í fangelsum, koma út og þá verðum við að hafa vettvang fyrir það til þess að komast inn í samfélagið. Við getum ekki haft þetta þannig að við góða fólkið, sem sofum á dýnunni, setjum hina slæmu í skúffuna undir, bara af því að,“ segir Þráinn.

Þó að þetta sé sárt og erfitt og jafnvel margir þolendur á bak við hvern geranda verði að hafa í huga að fara þá leið sem er farsælust fyrir samfélagið.

Þráinn segir að eitt það erfiðasta í starfinu sé að þurfa að víkja einhverjum úr húsi en yfirleitt er það vegna brota á reglum um notkun vímuefna.

„Að taka ákvörðun sem er svona íþyngjandi fyrir einstakling vegna þess að hann er með vímuefnavanda, sem er í rauninni vandi sem er hægt að meðhöndla en er gríðarlega erfiður og í rauninni mjög erfitt að fá einstaklinga til að horfast í augu við að hann sé fyrirstaða fyrir öllu sem viðkomandi gerir. Og þegar menn eru orðnir veikir þá finnst mér það alltaf verst. Að það sé einhver sem ræður ekki við það sem hann er að bera, það er að segja fíknivandann, og hann er auðvitað bara veikur.“

Að sögn Þráins verður þetta til þess að viðkomandi þarf að fara aftur í fangelsi og jafnvel afplána í lokuðu fangelsi í mörg ár.

Áætlar að vímuefnavandi kosti 150 milljarða á ári

Þráni finnst líka mjög erfitt að sjá ótímabæran dauða margra sem hann hefur haft snertingu við í kerfinu. „Það er svo rosalega mikið af fólki sem bara tapar,“ segir hann og vísar þar til hóps sem verður undir í samfélaginu. Fólk sem deyr ýmist af slysförum, sjálfsvígum eða fíknivanda. „Það er í rauninni kannski sá hópur sem við þekkjum vel og efnin sem er nú verið að eiga við eru mjög erfið. Ópíóíðar eru líklega það efni sem að mínu viti er eitt það allra erfiðasta af öllum efnum sem hafa komið hvað varðar einhvers konar bata eða að menn geti náð sér og ótímabær dauðsföll eru rosalega mörg. Eins og hefur komið fram í tölum þá erum við að missa alveg ótrúlegan fjölda af fólki og ætla má að við séum kannski að missa í vímuefnavanda einhver 100-150, -60, -70 manns á ári.“

Hann nefnir að viðbrögðin yrðu sennilega önnur ef dánarorsakirnar væru aðrar og áætlar að vímuefnavandi kosti samfélagið 150-160 milljarða króna á ári. „Þetta er eitthvað svo augljóst en samt ekki,“ segir Þráinn.

Spurður hvað við getum gert betur sem samfélag bendir Þráinn á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar eins og svo margir aðrir sem þekkja vel vanda ungs fólks sem ekki passar inn í kerfið.

Að börn fái greiningar og markvissan stuðning í skólakerfinu. „Við sjáum það í tölfræðinni hjá okkur að flestir þessara stráka hafa lent illa í skólanum,“ segir Þráinn og háu hlutfalli þeirra sem koma á Vernd hefur liðið illa í skóla og í rauninni liðið fyrir að vera í skóla.

„Þá getur maður spurt sig sem starfsmann hérna. Myndir þú vera hér ef staðan væri sú sama og tilfinning þeirra var þegar þeir voru í skóla. Það er svo augljóst að byrjunin er ekki góð og þarna getum við gert betur. Hætta þessari síbylju um að allir séu eins og að allt efni sem kennt er í skólanum eigi að vera eftir einhverjum tilteknum strúktúr. Af því að það eru einhverjir örfáir sem geta tekið það. Ég held að þarna sé lykillinn að því að stoppa nýliðunina og veita einstaklingum, sem eru í flestum tilvikum mjög hæfileikaríkir, athygli. Fólkið sem kemur til mín er í flestum tilvikum með ADHD, lesblindu og alls konar hluti en virka bara mjög vel í mörgu ef það væri hægt að stilla það þannig af að það væri hægt að gera þetta þannig að það fengi hvata til að vera með það.“

Þráinn segir að nánast öll alvarleg afbrot sem framin eru á Íslandi séu tengd fíkniefnum og áfengi. Að hans mati er lykilatriðið til að breyta því að taka upp skipulagða meðferðar- og endurhæfingarstefnu í fangelsismálum þannig að fólkið sem þangað fer inn fái að njóta farsældar. Í því felist að þar starfi fleiri sérfræðingar sem geti hjálpað því í þeim vanda sem það er í.

„Eins að það sé ekki veittur neinn afsláttur af refsingum því ef þú hugsar um þolandann, það er þann sem verður fyrir brotum, þá er refsingunni ætlað að hafa áhrif á það,“ segir Þráinn og nefnir í því samhengi tímabundið úrræði þar sem erlendum föngum er vísað úr landi. Alls hefur 40 föngum verið vísað úr landi. Aðgerðirnar byggjast á bráðabirgðaákvæði sem samþykkt var á Alþingi og heimilar að veita erlendum föngum reynslulausn eftir aðeins þriðjung afplánunar, að því gefnu að þeim sé vísað úr landi.

Hjónin Guðmundur Gíslason og Hafdís Guðmundsdóttir eru einnig viðmælendur í 7. þætti Betrunar. Þau störfuðu bæði innan fangelsismálakerfisins og hafa nýlega látið af störfum eftir um hálfrar aldar starf í þágu fangelsismála á Íslandi. Í þættinum kynnast hlustendur hjónunum og sögu þeirra sem nær aftur til níu ára aldurs í Melaskóla.

Guðmundur var lengi forstöðumaður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að stýra Fangavarðaskólanum.

Meira ofbeldi fylgir harðari efnum

Þegar Guðmundur byrjaði í sumarafleysingum í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg 9, árið 1974, hafi það verið eins og að stíga aftur til fortíðar. Flestir þar voru ógæfumenn að sitja af sér sektir sem þeir gátu ekki greitt. Fangahópurinn hafi breyst mikið í kringum 1980 þegar vímuefnin urðu harðari og meira um amfetamín og kókaín. Við það fjölgaði ofbeldisglæpum og afbrotin urðu harðari.

Það er auðvitað hægt að byggja fangelsi sem fíkniefni komast ekki inn í en það verður þá að vera með þeim hætti að raunverulega engir aðstandendur, engar sendingar, enginn búnaður sem fólk á sjálft, komist inn í fangelsið, segir Guðmundur.

„En fangelsið verður þá bara að vera lokaður kassi með þeim takmörkunum sem það hefur og náttúrlega ómanneskjulegt á allan hátt.“

Það gæti haft skelfilegar afleiðingar fyrir þá sem þar dvelja. „Maður getur ímyndað sér þá einangrun sem af því hlytist,“ segir Guðmundur. „En fangelsi í dag, þá er ég að tala um þessi venjulegu afplánunarfangelsi, hvort sem það er Litla-Hraun eða fangelsi úti í heimi, þau eru alltaf með þeim hætti að gestum fanganna er hleypt inn í fangelsið og þar fá þeir ákveðinn tíma til að vera með sínum aðstandanda eða fanganum í einrúmi,“ segir Guðmundur og bætir við að smyglleiðir séu ótalmargar og erfitt að koma í veg fyrir smyglið. Fangar fari út fyrir fangelsið, þeir fari í dagsleyfi, fari til læknis í alls konar vitjanir og það er hægt að nota þær til þess að smygla fíkniefnum. Þannig að þetta er vandamál sem erfitt er að koma í veg fyrir, segir Guðmundur.

„Eins og ég segi að ef það ætti að koma alfarið í veg fyrir slíkt þyrfti umhverfið eða rekstur fangelsis að vera með þeim hætti að það myndi enginn una við það, bara enginn í nútímasamfélagi.

Danir byggðu tvö fangelsi á tæpri öld

Í endurminningum sínum bendir Jón Bjarman, fyrsti fangapresturinn hér á landi, á að framkvæmdahraði á sviði fangelsismála hafi verið meiri fyrr á öldum því innan við öld leið á milli byggingar tukthússins við Arnarhól og Hegningarhússins. Tekið skal fram að það voru Danir sem byggðu þau, ekki Íslendingar. Eina fangelsið sem íslensk stjórnvöld hafa byggt er á Hólmsheiði og það tók langan tíma að koma því upp.

Guðmundur segir að Litla-Hraun sé ómögulegt fangelsi og endalaust verið að bæta við þar. Sumt hafi lukkast vel en annað hafi verið ómögulegt frá upphafi. Hann nefnir sérstaklega stóru bygginguna með turninum. „Það sem við köllum hús fjögur og var tekið í notkun 1995. Það hús var aldrei gott, fyrst og fremst held ég vegna þess að það var í rauninni ekki byggt eins og það átti að vera. Það var sparað svo mikið í byggingunni að það varð ekki gott hús.“

Guðmundur er sama sinnis og Þráinn um umhverfi fangelsa, að til þess að fangar uni hag sínum sé mikilvægt að umhverfið sé í lagi.

Í 6. þætti Betrunar fór Þráinn yfir það sem hann telur vont við fangelsið á Hólmsheiði.

Guðmundur nefnir aðrar byggingar sem hafa hýst fanga á Íslandi, svo sem Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsið, Litla-Hraun og Kvennafangelsið í Kópavogi. Af þeim var aðeins Hegningarhúsið byggt sem fangelsi. Ekkert þeirra er umhverfisvænt frá sjónarhorni þeirra sem þar dvelja.

„Þetta eru hlutir sem hefði átt að gera miklu betur,“ segir Guðmundur sem sat lengi í byggingarnefndum fyrir fangelsi. Hann segir að til að mynda hefði mátt gera margt miklu betur á Hólmsheiði.

Hafdís tekur undir með Guðmundi en það var orðið aðkallandi að koma upp fangelsi á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst vegna aðstandenda, lögreglu og verjenda manna í gæsluvarðhaldi.

Það var greinilegt, segir Guðmundur, að stjórnvöld höfðu ekki áhuga á að gera það sem þurfti að gera. „Það var skorið svo mikið niður að stórir þættir eins og námsaðstaða og vinnuaðstaða fanga varð hreinlega út undan.“ Hann bætir við að stöðugt hafi verið horft til fjölda fermetra, eða réttara sagt hversu fáir þeir ættu að vera, og hvað byggingin yrði að vera ódýr. Afleiðingarnar urðu þær að fangelsið varð ekki eins gott og til stóð.

Þremur fangelsum lokað þegar Hólmsheiðarfangelsi var opnað

Fangelsið á Hólmsheiði var sett niður þar sem lóð fékkst. Það mátti bara vera af ákveðinni stærð og í lokaniðurstöðum útboðsins var sérstaklega tekið fram að það mætti ekki vera stækkanlegt, segir Guðmundur. „Sem er eftir á að hyggja alveg galið.“

Þar eru 56 fangarými en þegar fangelsið var opnað var þremur fangelsum lokað.

Í þættinum er komið inn á pólitísk afskipti af byggingu fangelsa á Íslandi og frekar er fjallað um þau í 9. þætti Betrunar sem verður á dagskrá Rásar 1 þriðjudaginn 24. nóvember. Í næsta þætti Betrunar ber Hólmsheiðarfangelsið einnig á góma. Þar afplána konur sem hafa fengið óskilorðsbundna dóma.

Betrun er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum. Hægt er að hlusta á 7. þáttinn í heild hér fyrir ofan.

#fólki #mikið #rosalega #svo #það


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-16-thad-er-svo-rosalega-mikid-af-folki-sem-bara-tapar-492589

📰 Aðrar fréttir

Gerir þú alltaf sömu mistökin seint á kvöldin? – Gerðu þetta í staðinn
📅 17.11.2026 👁️ 0
Gerir þú alltaf sömu mistökin seint á kvöldin? – Gerðu þetta í staðinn
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir að það séu meiri líkur á að þú missir tökin af mataræðinu ef þú ert sífellt að banna þér h...
Bein út­sending: Blaða­mennska á tíma­mótum - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Blaða­mennska á tíma­mótum - Vísir
Á málþinginu kynnir Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fyrstu niðurstöður NORDREN-verkefnisins um upplýsingaóreiðu á ...
Óð ber­fættur í Seljalandsá til að sækja síma á­hrifa­valds - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Óð ber­fættur í Seljalandsá til að sækja síma á­hrifa­valds - Vísir
Áhrifavaldurinn, bresk kona að nafni Meadow Waddington, birti í gær myndskeið á Instagram þar sem hún greindi frá því að hún hefði misst snjallsíma si...
Ráðast í frestuðu fram­kvæmdirnar í há­deginu - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Ráðast í frestuðu fram­kvæmdirnar í há­deginu - Vísir
Lokað verður fyrir umferð af Bústaðavegi inn á rampinn niður á Kringlumýrarbraut til norðurs milli klukkan ellefu og eitt í dag. Búast má við umferðar...
Bankarnir gætu setið uppi með hundruð íbúða – Íslandsbanki keypti 20 á Hlíðarenda
📅 17.11.2026 👁️ 0
Bankarnir gætu setið uppi með hundruð íbúða – Íslandsbanki keypti 20 á Hlíðarenda
Blikur eru á lofti á íslenskum fasteignamarkaði og vara Acro verðbréf við því að brotlending kunni að vera fram undan. Fjárhagserfiðleikar byggingarfy...
The Canary Islands 2027 budget projects record growth in online gambling tax revenue
📅 17.11.2026 👁️ 0
The Canary Islands 2027 budget projects record growth in online gambling tax revenue
On 30th October, the Canary Islands government submitted a draft budget to the regional parliament for the archipelago for 2027, totalling 13.2 billio...
Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda
📅 17.11.2026 👁️ 0
Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda
Dótturfélag dótturfélags Íslandsbanka hefur keypt 20 íbúðir í fjölbýlishúsi sem er verið að reisa við Valshlíð og Haukahlíð á Hlíðarenda í Reykjavík. ...
Elsta kona Dan­merkur reyndist nas­isti - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Elsta kona Dan­merkur reyndist nas­isti - Vísir
Kirsten Schwalbe er 112 ára og elsta manneskja Danmerkur í sögunni. Fjölmiðlar í landinu hafa fjallað mikið um hana síðastliðinn mánuð en hún sló meti...
Kerch-brúin hrunin - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Kerch-brúin hrunin - Vísir
Óljóst er hve miklar skemmdirnar eru eftir árásirnar í Kænugarði. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, birti í morgun myndband þar sem hann segir...
Hlýtt um helgina, eða þannig - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Hlýtt um helgina, eða þannig - Vísir
Í dag verður austanátt, 10-18 m/s sunnan- og suðaustantil og dálítil slydduél. Annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1...
TUESDAY WEATHER: A warm day ahead across the Canary Islands
📅 17.11.2026 👁️ 0
TUESDAY WEATHER: A warm day ahead across the Canary Islands
The Canary Islands can expect a settled Tuesday, 17th November, with plenty of sunshine after some early cloud in northern areas.Temperatures are expe...
Hætta umfjöllun um konu sem reyndist hafa verið í nasistaflokknum
📅 17.11.2026 👁️ 2
Hætta umfjöllun um konu sem reyndist hafa verið í nasistaflokknum
Dönsk fréttastöð hefur ákveðið að hætta að fjalla um elstu konu Danmerkur eftir að upp komst að hún var virkur meðlimur í danska Nasistaflokknum á str...
1.828 umsagnir bárust vegna hækkunar framfærsluskilyrða – Segja umsagnirnar mest frá útlendingum
📅 17.11.2026 👁️ 2
1.828 umsagnir bárust vegna hækkunar framfærsluskilyrða – Segja umsagnirnar mest frá útlendingum
Dómsmálaráðuneytið vill nær tvöfalda framfærslukröfu fyrir dvalarleyfi útlendinga: Fyrir einstakling myndi hún hækka úr 259.951 krónum í 501.186 krónu...
50+: Skvísan hún amma og töffarinn hann afi - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
50+: Skvísan hún amma og töffarinn hann afi - Vísir
Svo kemur árið 2026. Amma er í ræktinni klukkan sex á morgnana. Afi fer út með hundinn á morgnana en í ræktina síðdegis. Spinning. Barnabarnið fær myn...
Nýtt viðurnefni Pútíns vekur athygli – Ríkustu menn Rússlands farnir að horfa til framtíðar án hans
📅 17.11.2026 👁️ 2
Nýtt viðurnefni Pútíns vekur athygli – Ríkustu menn Rússlands farnir að horfa til framtíðar án hans
Ríkustu menn Rússlands eru farnir að velta því fyrir sér hvað taki við þegar Vladimír Pútín forseti hverfur af sjónarsviðinu. Sumir þeirra virðast jaf...
Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós
📅 17.11.2026 👁️ 2
Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós
Í febrúar árið 1981 hvarf 31 árs gömul móðir sporlaust eftir að hafa yfirgefið krá í Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Sex dögum síðar fannst lík hennar í...
British tourists generate a record €3.7bn income for Tenerife
📅 17.11.2026 👁️ 2
British tourists generate a record €3.7bn income for Tenerife
British tourists generated €3.71 billion in tourism revenue for Tenerife last year, a 3.6% increase on 2024, according to new figures from Turismo de ...
Gréta María í mál við Sam­kaup - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Gréta María í mál við Sam­kaup - Vísir
Þetta kemur fram á dagskrá dómstóla en málið verður tekið fyrir á morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur.  Prís og Heimkaup eru bæði í eigu Samkaupa. Samkaup...
Himinhár gjaldveggur setji námið í hættu
📅 17.11.2026 👁️ 2
Himinhár gjaldveggur setji námið í hættu
Skólagjöld sem tekin verða upp fyrir nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins við Háskóla Íslands gæti haft veruleg áhrif á aðsókn í alþjóðlegt nám vi...
Hvasst, kalt og dálítil slydduél
📅 17.11.2026 👁️ 2
Hvasst, kalt og dálítil slydduél
Allhvöss austanátt með slydduéljum verður við suður- og suðausturströndina í dag. Búast má við allt að 18 metrum á sekúndu.Annars staðar verður öllu h...
Watch: How predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
📅 17.11.2026 👁️ 2
Watch: How predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
The Metropolitan Police repeatedly missed opportunities to stop det insp Warren Arter, BBC Panorama has found.
Met Police missed opportunities stop predatory detective who ran rape unit, BBC finds
📅 17.11.2026 👁️ 3
Met Police missed opportunities stop predatory detective who ran rape unit, BBC finds
Warren Arter used his position - running a team investigating sexual assaults - to target women.
Komyshuvakha: Ukraine accuses Russia of targeting rescue operation after strikes that killed 57
📅 17.11.2026 👁️ 3
Komyshuvakha: Ukraine accuses Russia of targeting rescue operation after strikes that killed 57
Efforts to recover bodies after a “double-tap” attack in southern Ukraine are being hampered by continuing Russian strikes, officials say.
Kaliforníuríki fer í mál við OpenAI
📅 17.11.2026 👁️ 3
Kaliforníuríki fer í mál við OpenAI
Rob Bonta ríkissaksóknari Kaliforníu tilkynnti í gær um málsókn ríkisins á hendur gervigreindarfyrirtækinu OpenAI. Málsóknin er byggð á þeim grundvell...
Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum
📅 17.11.2026 👁️ 3
Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum
Ísraelskir landtökumenn skutu 60 ára gamla palestínska konu í höfuðið í gær. Hún lést skömmu síðar af sárum sínum. Ísraelsher greinir frá því að pales...
Two major Kyiv bridges hit in Russian attack, mayor says
📅 17.11.2026 👁️ 3
Two major Kyiv bridges hit in Russian attack, mayor says
The reported strikes come a day after Ukraine launched its largest recorded drone attack on Russia since the start of the war, according to Moscow.
Crimea bridge shut after reported Ukrainian strike, as Russia hits Kyiv crossings
📅 17.11.2026 👁️ 0
Crimea bridge shut after reported Ukrainian strike, as Russia hits Kyiv crossings
The bridge linking Crimea and Russia has reportedly sustained major damage, while two routes through Kyiv are closed.
US Vice-President Vance will decide 'sometime next year' about presidential run
📅 17.11.2026 👁️ 3
US Vice-President Vance will decide 'sometime next year' about presidential run
The US vice-president tells Fox News that when he makes a decision to run or otherwise, he will "be all in on whatever that decision is".
Rússneskar þotur rufu lofthelgi Japans
📅 17.11.2026 👁️ 4
Rússneskar þotur rufu lofthelgi Japans
Japönsk stjórnvöld greina frá því að orrustuþotur hafi verið sendar af stað eftir að tvær flugvélar sem Japanir telja að séu rússneskar rufu japanska ...
Blaðamaður skotinn til bana í bíl sínum
📅 17.11.2026 👁️ 4
Blaðamaður skotinn til bana í bíl sínum
Kostaríski blaðamaðurinn Camilo Rodriguez var skotinn til bana rétt fyrir utan höfuðborgina San José í dag. Rodriguez var á ferð í bíl sínum þegar tve...
Imran Khan seeks urgent medical care fearing he 'may not return alive'
📅 17.11.2026 👁️ 4
Imran Khan seeks urgent medical care fearing he 'may not return alive'
Pakistan's ex-prime minister, who has been in prison since August 2023, says he has been denied justice.
Failed asylum seekers face removal without five-day notice period
📅 17.11.2026 👁️ 4
Failed asylum seekers face removal without five-day notice period
Under proposed new rules, the Home Office would have six months in which to remove a person without telling them in advance.
Uggandi um að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf
📅 17.11.2026 👁️ 4
Uggandi um að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf
Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt við Háskóla Íslands, hefur miklar áhyggjur af því að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf.Háskóli Ísland...
UK weather: Met Office yellow warning in place as snow could disrupt rush hour travel
📅 17.11.2026 👁️ 4
UK weather: Met Office yellow warning in place as snow could disrupt rush hour travel
Snow could bring some transport disruption to the hills of northern England and southern Scotland, as Chris Fawkes explains.
UK weather: Met Office yellow warning in force as snow may disrupt travel
📅 17.11.2026 👁️ 0
UK weather: Met Office yellow warning in force as snow may disrupt travel
Snow could bring some transport disruption to the hills of northern England and southern Scotland, as Chris Fawkes explains.
The young people caught up in Britain's Neets crisis
📅 17.11.2026 👁️ 4
The young people caught up in Britain's Neets crisis
BBC News speaks to four of the million young people aged 16 to 24 who are not in work, education or training.
Brýr skotmark bæði Rússa og Úkraínumanna
📅 16.11.2026 👁️ 4
Brýr skotmark bæði Rússa og Úkraínumanna
Úkraínumenn gerðu árás á Krímbrúna annan daginn í röð. Krímbrúin tengir Rússland og Krímskaga saman. Ríkisstjóri Krímskaga greindi frá árásinni á Tele...
Tafir urðu í Hvalfjarðargöngum vegna umferðaróhapps
📅 16.11.2026 👁️ 4
Tafir urðu í Hvalfjarðargöngum vegna umferðaróhapps
Tafir urðu á umferð í og við Hvalfjarðargöng vegna umferðaróhapps. Greint var frá þessu á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Í tilkynningu kom fram að ...
James Blunt virðist hafa skipt um nafn - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 5
James Blunt virðist hafa skipt um nafn - Vísir
Söngvarinn sem skaust upp á stjörnuhimininn árið 2004 með plötunni Back To Bedlam var að gefa út spánýja plötu á dögunum, plötuna Airplane mode. Til a...
Guðfaðirinn er látinn: Glæpaveldið sem hann byggði upp breytti Mexíkó fyrir fullt og allt
📅 16.11.2026 👁️ 4
Guðfaðirinn er látinn: Glæpaveldið sem hann byggði upp breytti Mexíkó fyrir fullt og allt
Miguel Ángel Félix Gallardo, einn alræmdasti fíkniefnabarón sögunnar og maðurinn sem lagði grunninn að valdamestu glæpasamtökum Mexíkó, er látinn, 80 ...
'Complete reset' needed to get young people into work, says Milburn review
📅 16.11.2026 👁️ 4
'Complete reset' needed to get young people into work, says Milburn review
Alan Milburn's review will call for sweeping reforms to the education, work and welfare systems.
Nafn dóttur hennar notað til að senda hótanir - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Nafn dóttur hennar notað til að senda hótanir - Vísir
„Málið er að þetta voru ótrúlega margar tilviljanir. Í sumar fæ ég símtal frá forvarnarráðgjafa Hafnarfjarðarbæjar, hún vissi hver ég væri og dóttir m...
Notaði að­gang í nafni dóttur hennar í hótanir - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Notaði að­gang í nafni dóttur hennar í hótanir - Vísir
„Málið er að þetta voru ótrúlega margar tilviljanir. Í sumar fæ ég símtal frá forvarnarráðgjafa Hafnarfjarðarbæjar, hún vissi hver ég væri og dóttir m...
Tæknivandræði hjá stórum bönkum í Bandaríkjunum
📅 16.11.2026 👁️ 4
Tæknivandræði hjá stórum bönkum í Bandaríkjunum
Viðskiptavinir stórra banka í Bandaríkjunum, þar á meðal Bank of America, JP Morgan Chase og Wells Fargo, hafa tilkynnt vandamál með þjónustu bankanna...
Cass report author says she does not support draft conversion practices bill
📅 16.11.2026 👁️ 4
Cass report author says she does not support draft conversion practices bill
The gender care review author says the bill’s wording risks "serious unintended consequences" for parents and therapists.
Ár­bæjar­skóli er sigur­vegari Skrekks 2026 - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Ár­bæjar­skóli er sigur­vegari Skrekks 2026 - Vísir
Í Skrekk fá unglingar í grunnskólum Reykjavíkur á ári hverju að vinna með hugmyndir sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins fyrir h...
Grét þegar hún varði Jón vantrausti - „Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu“
📅 16.11.2026 👁️ 4
Grét þegar hún varði Jón vantrausti - „Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu“
Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður Vinstri grænna kemur Ingvari Þóroddssyni, sem flutti sig í dag úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn, til varnar. Hún m...
Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“
📅 16.11.2026 👁️ 2
Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“
Þegar Baland Jalal var ungur maður í Kaupmannahöfn varð hann fyrir upplifun sem hann gleymir seint. Hann lá í rúminu sínu þegar honum fannst draugur v...
Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum
📅 16.11.2026 👁️ 3
Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum
Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að bandaríski kynferðisbrotamaðurinn Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi heldur hafi hann verið ...
Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“
📅 16.11.2026 👁️ 5
Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“
Nýir sjónvarpsþættir á Netflix hafa vakið hörð viðbrögð meðal áhorfenda og trúarhópa, sem saka streymisveituna um að ganga allt of langt í kynferðisle...