Félög sjómanna og útgerðarmanna í Vestmannaeyjum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Þau vara við því að skorður verði settar við því hversu mikinn sjávarafla megi flytja óunninn úr landi.
Fram kom í fréttum RÚV fyrr í mánuðinum að útflutningur á óunnum slægðum þorski hefði aukist á árunum 2019-2025. Þar kom einnig fram að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vildu að skorður yrðu settar við útflutningnum til að vernda innlenda fiskvinnslu. Atvinnuvegaráðherra skipaði starfshóp í sumar til að kanna hversu mikið væri flutt út af óunnum fiski og leiðir til að sporna við slíkum útflutningi.
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, sjómannafélagið Jötunn og Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi hafa sameinast um að vara við slíkum takmörkunum. Þau segja að þær gætu orðið til að lækka söluverð aflans og þar með tekjur sjómanna.
„Íslenskur sjávarútvegur starfar á grundvelli frjálsra viðskipta og skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum, þar sem meginreglan er frjáls vöruflutningur og jafnræði í samkeppni. Allar íhlutanir hins opinbera í ráðstöfun afla eða takmarkanir á útflutningi verða að samræmast þessum skuldbindingum og byggja á málefnalegum og hlutlægum forsendum og ekki síst fyrirsjáanleika.“
Félögin segja mikilvægt að útgerðir og fyrirtæki í sjávarútvegi geti áfram ráðstafað afla sínum með þeim hætti sem hentar hverju sinni. Þau segja að slíkt sé forsenda heilbrigðrar samkeppni, hagkvæmni í rekstri og verðmætasköpunar í greininni. Auk þess búi íslenskur sjávarútvegur að langri og rótgróinni hefð fyrir útflutningi á óunnum fiski. Það geri þeim kleift að bregðast við breytilegum aðstæðum bæði innanlands og á alþjóðamörkuðum.