11 eru látnir og 16 eru slasaðir eftir að eldur braust út í fjögurra hæða byggingu á taílensku eyjunni Phuket í gærkvöldi. Í byggingunni voru bæði íbúðir og verslunarrými.
Eldurinn kviknaði um klukkan 3.30 um nótt að staðartíma, eða um 8.30 í gærkvöldi að íslenskum tíma. Tveir tímar liðu áður en slökkvilið náði stjórn á eldinum. Hinir látnu voru flestir frá Taílandi og Myanmar.
Lengi hefur verið rætt um að skerpa þurfi á öryggis- og heilsuverndarreglum í Taílandi. Í júlí varð fjölsóttur bar í Bangkok alelda og fylltist af reyk með þeim afleiðingum að 40 manns létust. Að sögn yfirvalda kviknaði eldurinn vegna skammhlaups í rafbúnaði.