Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand var á mánudag dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann var upphaflega ákærður í sex málum og eru tvö mál enn til rannsóknar.
Farið var yfir feril Brands í grein á Vísi sem lesa má hér fyrir neðan.
Brotin áttu sér stað á árunum 2004 til 2009 þegar Brand var að hefja vegferð sína í skemmtanabransanum. Um mitt ár kynntist hann söngkonunni Katy Perry og hófu þau samband sem lauk með skilnaði árið 2012. Frægt er að Brand tilkynnti Perry að hann ætlaði að skilja við hana í gegnum smáskilaboð (SMS).
Árið 2015 byrjaði hann í sambandi með Lauru Gallacher. Þau giftu sig árið 2017 og tók hún þá upp eftirnafn hans. Saman eiga þau þrjú börn.
Síðustu ár hefur Brand verið með nokkra hlaðvarpsþætti, þar á meðal þættina Sunday Service with The Brands, eða Sunnudagsmessa með Brand-fjölskyldunni. Nýjasti þátturinn kom út í gær og hefst hann á því að Laura les ein úr Biblíunni. Því næst kemur þáttur sem þau hjónin tóku saman upp áður en Brand fór á bak við lás og slá.
Parturinn sem Laura var ein að lesa var tekinn upp eftir að Brand var dæmdur. Þar tjáir hún sig í fyrsta sinn eftir dóminn. Hún kveðst ætla að halda áfram með þættina og lesa fyrir aðdáendur úr Biblíunni.
„Við treystum Guði og við treystum plani hans. Við treystum öllu sem hann gerir,“ segir Laura. Hún hafi rætt við Brand úr fangelsinu og að hann sé „í lagi“ og biðji enn til Guðs.
Upphaflega var Brand fangelsaður í Wandsworth-fangelsinu en Laura greinir frá því að hann hafi verið fluttur í Littlehey-fangelsið, sem er ætlað mönnum sem hafa gerst sekir um kynferðisbrot.