Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Lykillinn að fegurð eftir langt flug
Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrum forsetafrú Íslands, elskar að standa á haus og þá sérstaklega eftir langt flug. Hún birti mynd af sér í höfuðstöðu á Instagram þar sem hún skrifaði: „Eina leiðin til að vakna og líta vel út eftir langt flug. Höfuðstaða og Bioeffect húðumhirða,“ en Dorrit birti einnig mynd af rakamaska frá íslenska húðfyrirtækinu Bioeffect.
Rokkaði í Rick Owens
Tónlistardrottningin Björk Guðmundsdóttir tróð upp á tónlistarhátíð í Finnlandi og klæddist frumlegum fatnaði að vanda, frá tískuhönnuðinum Rick Owens.
Bak við tjöldin hjá Unni Backman
Leikkonan Unnur Backman deildi skemmtilegum myndum frá tökum á sjónvarpsþáttunum Elmu, sem hún fer með aðalhlutverk í.
Dubai dama
Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Brynhildur Gunnlaugsdóttir birti myndir af ströndinni í Dubai.
„Random gæi“
Snapchat-stjarnan Arnór Snær segist vera random og birti handahófskenndar myndir á Instagram í tilefni af því.
Gamlir og sjóðheitir taktar
Poppkóngurinn Páll Óskar birti gamlar og góðar myndir í tilefni af því að hann ætli að gefa út 30 ára hátíðarútgáfu af plötunni SEIF.
Líður vel í snjóhúsi
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Sunneva Einars fór í partý á Langjökli og grínaðist með að Íslendingar byggju í snjóhúsi.
Indónesíu-ævintýri
Vörumerkjastjórinn Gyða Dröfn er dugleg að ferðast víða um heim og nýtur nú lífsins í Indónesíu.
Áhrifavaldasonur kominn með nafn
Áhrifavaldarnir Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason skírðu son sinn um helgina. Hann fékk nafnið Lucas Leví.
Glæpaandi á Bessastöðum
Halla Tómasdóttir forseti Íslands bauð glæpasagnarithöfundum í teiti á Bessastaði í tilefni af glæpasagnahátíðinni Iceland Noir. Hún brosti breitt með stjörnurithöfundunum Ragnari Jónassyni og Yrsu Sigurðardóttur.
Ást í Kópavogi
Stjörnuparið Helgi Ómarsson, áhrifavaldur, og Pétur Sveinsson, varaþingmaður Viðreisnar, fóru í rómantískan göngutúr í snjónum.
Kærustupar í tíu ár
Tónlistarmaðurinn Aron Can og flugfreyjan Erna María eru búin að vera ástfangin í tíu ár og sömuleiðis bestu vinir.
Tíu ár edrú
Liðin vika einkenndist af stórum tímamótum en Sara Linneth mannauðsstjóri og förðunarfræðingur fagnaði tíu ára edrú afmæli og fallegu lífi þann ellefta nóvember.
Sólbað við sundlaugina
Ofurfyrirsætan Birta Abiba er að gera góða hluti í módelbransanum vestanhafs og naut sín vel í sólinni við sundlaugarbakkann um helgina.
Fyrsta ferðalagið í 22 ár
Stjórnmálamaðurinn Ásmundur Einar Daðason skellti sér til Mongólíu með föður sínum í síðustu viku. Þetta er sannarlega langt ferðalag hjá feðgunum en jafnframt fyrsta útlandaferð Daða í 22 ár.